Upphæðirnar sem sýndar eru í glugganum Sölugreining eftir víddum gefa mynd af sölu og innkaupum við síðustu uppfærslu. Til að sjá mynd af raunverulegri stöðu verður að uppfæra birgðagreiningaryfirlitið með því að smella á Uppfæra. Það er hægt að gera úr eftirfarandi gluggum:
-
Í glugganum Sölugreiningaryfirlitsspjald
-
Í glugganum Sala - Greiningaryfirlit - Listi
Eftirfarandi aðgerð er til að uppfæra greiningaryfirlit úr glugganum Sölugreiningaryfirlit - listi.
Sölugreiningaryfirlit uppfærð
Í reitnum Leita skal færa inn Sölugreining eftir víddum og velja síðan viðkomandi tengi.
Veljið línu greiningaryfirlits sem á að uppfæra og því næst Uppfæra úr flokknum Vinna á flipanum Heim.
Til athugunar |
---|
Ef reiturinn Uppfæra við bókun er valinn á greiningaryfirlitsspjaldi uppfærist spjaldið sjálfkrafa í hvert sinn sem birgðahöfuðbókarfærslur eru bókaðar. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |