Opnið gluggann Innk.greining eftir víddum.

Í fylkinu Innkaupagreining eftir víddum er hægt að skoða upplýsingar úr greiningaryfirlitum sem notandinn hefur sett upp. Hægt er að greina aðgerðir með því að nota víddaupplýsingar. Tiltækar víddir í glugganum innihalda einnig dagsetningu og vörunúmer.

Með því að velja víddir á hverjum ás í fylkisglugganum er hægt að greina færslur frá ýmsum sjónarhornum. Einnig er hægt að afmarka færslur í glugganum til að búa til mjög greinargóða mynd af starfsemi fyrirtækisins.

Fylla skal í reitina í glugganum Innk.greining eftir víddum og smella svo á Sýna fylki. Í dálkunum í glugganum eru eftirfarandi upplýsingar:

Kóti

Í þessum reit er kóti víddargildis.

Heiti

Í þessum reit er heiti víddargildis.

Heildarupphæð

Þessi dálkur sýnir heildarupphæð fyrir þá tegund upphæða sem var valin á flipanum Valkostir í reitnum Sýna.

Fylki

Aðrir dálkar í glugganum sýna upphæðir sem byggðar eru á greiningaryfirlitinu. Hægt er að nota hnappana Hreyfing eða Staða til dags. til að skoða þessar upphæðir með mismunandi hætti. Lengd tímabila er valin í reitnum Skoða eftir.

Ábending

Sjá einnig