Í fylkinu Innkaupagreining eftir víddum er hægt að skoða upphæðirnar í fjárhag með því að nota greiningaryfirlit sem þegar hafa verið sett upp. Reitirnir eru fylltir út í svarglugganum Innkaupagreining eftir víddum og svo smellt á Sýna fylki til að skoða fylki með línum og dálkum. Í dálkunum til vinstri eru upplýsingar byggðar á því sem valið er í reitnum Sýna sem línur í svarreitnum. Í dálkunum til hægri eru upplýsingar byggðar á því sem valið er í reitnum Sýna sem dálka.

Sölugreiningaryfirlit skoðuð eftir víddum

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Innkaupagreining eftir vídd og velja síðan viðkomandi tengil. Glugginn Greiningaryfirlitslisti - innkaup birtist.

  2. Velja skal yfirlitið sem á að greina. Á flipanum Heim, í flokknum Vinna skal velja Breyta greiningaryfirliti.

  3. Í glugganum Innk.greining eftir víddum fyllið út reitina til að skilgreina greiningaryfirlit.

    Ábending
    Flýtiflipinn Valkostir gefur færi á ýmsum valmöguleikum til að skoða upphæðina.

    Einnig er hægt að breyta útlitinu með því að breyta innihaldi reitanna Sýna sem línur og Sýna sem dálka . T.d. er hægt að nota eitt greiningaryfirlit með fjórum víddum til að skipta greiningaryfirlitinu niður á 42 vegu.

  4. Til að víxla línum og dálkum er farið á flipann Færsluleit, flokkinn Aðgerðir og Víxla línum og dálkum valið.

  5. Á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Sýna fylki til að opna greiningaryfirlit.

  6. Til að sjá lýsingu á upphæð sem er sýnd í fylkisglugganum er smellt á upphæðina .

Til athugunar
Hægt er að nota skýrsluna Víddir - Sundurliðun til að sýna ítarlega flokkun á notkun vídda í færslum á tilteknu tímabili. Hægt er að nota skýrsluna Víddir - Heild til að sýna aðeins heildarupphæðirnar.

Einnig er hægt að skoða upphæðir innkaupagreiningar í myndriti. Frekari upplýsingar eru í Innkaupaafköst.

Ábending

Sjá einnig