Hægt er að flytja innkaupagreiningaryfirlit út í Microsoft Excel. Þar er hægt að greina og vinna við Microsoft Dynamics NAV gögn með öllum aðgerðum í Excel.
Innkaupagreiningaryfirlit flutt út í Excel:
Í reitnum Leit skal færa inn Innkaupagreining eftir vídd og velja síðan viðkomandi tengil.
Veljið greiningaryfirlitið og því næst Breyta greiningaryfirliti úr flokknum Almennt á flipanum Aðgerðir.
Í glugganum Greiningaryfirlitslisti - innkaup á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Sýna fylki.
Í glugganum Innk. Greining eftir vídd á flipanum Færsluleit í flokknum Aðgerðir veljið Flytja út í Excel.
Viðvörun |
---|
Hámarksfjöldi lína í Excel er um það bil 65000. Ef greiningaryfirlitið býr til of margar línur birtast villuboð í Excel. |
Til athugunar |
---|
Í Excel sýna dálkfyrirsagnirnar alltaf kótann. Ef gátmerki er sett í gluggann Innkaupagreining eftir víddum í reitnum Sýna heiti dálka sýna dálkfyrirsagnirnar bæði kóta og heiti í Excel. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |