Opnið gluggann Dagsetningaþjappa VSK-færslur.

Þjappar VKS-færslur og sameinar þær svo að þær taki minna pláss í gagnagrunninum. Aðeins er hægt að þjappa færslum sem tilheyra lokuðum reikningsárum.

Þjöppunin sameinar margar gamlar færslur í eina nýja. Þannig má til að mynda þjappa höfuðbókarfærslum umliðinna reikningsára þannig að á hverjum reikningi sé einungis um að ræða eina kreditfærslu og eina debetfærslu í hverjum mánuði. Upphæðin í nýju færslunni er samtala allra þjöppuðu færslnanna. Dagsetningin sem færslan hlýtur er upphafsdagsetning tímabilsins sem er þjappað, til dæmis fyrsti dagur mánaðarins (ef færslunum er þjappað eftir mánuðum). Eftir þjöppunina er enn hægt að sjá hreyfingar fyrir hvern reikning reikningsársins á undan.

Eftir þjöppunina er efni eftirfarandi reita alltaf varðveitt: Bókunardags., Tegund, Lokað, Alm. viðsk.bókunarflokkur, Alm. vörubókunarflokkur, Teg. VSK-útreiknings, Grunnur, og Upphæð. Með aðgerðinni Varðveita reitainnihald er einnig hægt að varðveita efni eftirfarandi viðbótarreita: Númer fylgiskjals, Reikningsfærslu/Greiðsla-til nr., ESB-þríhyrn.viðsk., Lands-/svæðiskóti og Innra tilvísunarnr..

Fjöldi færslna sem verða til í keyrslunni Dags.þj. fjárh.áætl.færslna ræðst af fjölda afmarkana sem settar eru, reitum sem eru sameinaðir og lengd tímabilsins sem er valið. Það er alltaf minnst ein færsla. Þegar keyrslu er lokið má sjá útkomuna í glugganum Shortcut iconDags.þjöppun dagbóka.

Viðvörun
Dagsetningaþjöppun eyðir færslum svo að tryggara er að taka alltaf afrit af gagnasafni áður en keyrslan er sett í gang.

Valkostir

Reitur Lýsing

Upphafsdagsetning

Hér er færð inn upphafsdagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar VSK-færslur frá þessari dagsetningu til Lokadagsetning.

Lokadagsetning

Hér er skráð lokadagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar vsk-færslur úr Upphafsdagsetning svæðinu.

Lengd tímabils

Lengd þess tímabils sem sameina á færslur í er valið. Til að sjá valkostina skal velja reitinn. Ef valið er tímabilið Fjórðungur, Mánuður eða Vika eru eingöngu færslur með sameiginlegu reikningstímabili þjappaðar.

Varðveita reitainnihald

Valið ef varðveita á innihald tiltekinna reita jafnvel þótt færslum sé þjappað. Því fleiri reitir sem eru valdir, þeim mun ítarlegri verða þjöppuðu færslurnar. Ef ekki er valinn neinn þessara reita, stofnar keyrslan eina færslu á dag, viku eða öðru tímabili eftir þeirri tímalengd sem var valin í reitnum Lengd tímabils.

Númer fylgiskjals

Velja ef óskað er eftir að varðveita efni reitsins Númer fylgiskjals.

Reikningsfærslu/Greiðsla-til nr.

Velja ef óskað er eftir að varðveita efni reitsins Reikningsfærslu/Greiðsla-til nr..

ESB-þríhyrn.viðsk.

Velja ef óskað er eftir að varðveita efni reitsins ESB-þríhyrn.viðsk..

Lands-/svæðiskóti

Velja ef óskað er eftir að varðveita efni reitsins Lands-/svæðiskóti.

Innra tilvísunarnr.

Velja ef óskað er eftir að varðveita efni reitsins Innra tilvísunarnr..

Ábending

Sjá einnig