Opnið gluggann Fjöldabóka samsetningarpantanir.
Bókar margar samsetningarpantanir í einu. Þetta getur verið gagnlegt ef um er að ræða margar samsetningarpantanir sem þarf að bóka. Hægt er að velja pantanir til bókunar og tilgreina forgang þeirra áður en keyrslan er sett af stað.
Mikilvægt |
---|
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á samsetningapantanirnar áður en þær eru fjöldabókaðar. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margar samsetningarpantanir voru bókaðar. |
Keyrslan er keyrð með því að opna gluggann Samsetningarpantanir, velja pantanirnar sem á að bóka og velja svo hnappinn Fjöldabóka.
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Bókunardags. | Færa inn þá dagsetningu sem á að nota sem dagsetningu skjals eða bókunar þegar bókað er ef gátreiturinn Endursetja bókunardags. er valinn. Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt viðeigandi gátreitur sé ekki valinn. |
Endursetja bókunardags. | Velja ef óskað er eftir að skipta út bókunardagsetningu skjals í pöntunum með dagsetningunni sem færð er inn í reitnum Bókunardags.. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |