Opnið gluggann Fjöldabóka söluvöruskilapantanir.

Bókar margar söluvöruskilapantanir í einu. Þetta getur komið sér vel ef um er að ræða mikinn fjölda söluvöruskilapantana sem verður að bóka. Hægt er að velja pantanir til bókunar og tilgreina forgang þeirra áður en keyrslan er sett af stað.

Mikilvægt
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á vöruskilapantanir áður en þær eru fjöldabókaðar. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margar söluvöruskilapantanir voru bókaðar.

Keyrslan er keyrð með því að opna gluggann Söluvöruskilapantanir, velja pantanirnar sem á að bóka og velja svo hnappinn Fjöldabóka.

Valkostir

Reitur Lýsing

Móttaka

Valið ef pantanir eru mótteknar við bókun. Þegar þessi gátreitur er valinn gildir það fyrir allar bókaðar pantanir.

Reikningur

Valið ef pantanir eru reikningsfærðar við bókun. Þegar þessi gátreitur er valinn gildir það fyrir allar bókaðar pantanir.

Bókunardags.

Færa skal inn þá dagsetningu sem á að nota sem dagsetningu skjals eða bókunar þegar bókað er ef gátreiturinn Endursetja dags. skjals eða gátreiturinn Endursetja bókunardags. er valinn. Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt enginn viðeigandi gátreitur sé valinn.

Endursetja bókunardags.

Velja ef óskað er eftir að skipta út bókunardagsetningu skjals í pöntunum með dagsetningunni sem færð er inn í reitnum Bókunardags..

Endursetja dags. skjals

Velja ef óskað er eftir að skipta út dagsetningu skjals í pöntunum með dagsetningunni í reitnum Bókunardags..

Reikna reikn.afsl.

Valið ef reikna á upphæð reikningsafsláttar í pöntunum fyrir bókun.

Ábending

Sjá einnig