Opnið gluggann Fjöldabóka þjónustureikninga.
Bókar marga þjónustureikninga í einu. Hún getur verið gagnleg ef bóka þarf marga þjónustureikninga. Áður en keyrslan er sett í gang þarf að velja þá reikninga sem eiga að bókast.
Mikilvægt |
---|
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á þjónustureikningana áður en þeir eru fjöldabókaðir. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margir reikningar voru bókaðir. |
Keyrslan er keyrð með því að opna gluggann Þjónustureikningur og bóka svo keyrsluna.
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Bókunardags. | Færa inn þá dagsetningu sem forritið notar sem dagsetningu skjals eða bókunar þegar bókað er ef gátreiturinn Endursetja bókunardags. eða gátreiturinn Endursetja dags. skjals er valinn eða báðir valdir. Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt viðeigandi gátreitur sé ekki valinn. |
Endursetja bókunardags. | Valið ef skipta á bókunardagsetningu þjónustureikninganna út fyrir dagsetninguna í reitnum Bókunardags.. |
Endursetja dags. skjals | Valið ef skipta á dagsetningu fylgiskjals þjónustureikninga út fyrir dagsetninguna í reitnum Bókunardags.. |
Reikna reikn.afsl. | Valið ef reikna á upphæð reikningsafsláttar í þjónustureikningum fyrir bókun. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |