Opnið gluggann Dagsþj. eignahöfuðbók.
Sameina fjárhagsfærslur eigna svo að þær taki minna pláss í gagnagrunninum. Aðeins er hægt að þjappa færslum sem tilheyra lokuðum reikningsárum.
Þjöppunin sameinar margar gamlar færslur í eina nýja. Til dæmis er hægt að þjappa eignafærslum frá fyrra reikningsári svo að aðeins verði ein færsla á eign í hverjum mánuði. Upphæðin í nýju færslunni er samtala allra þjöppuðu færslnanna. Dagsetningin sem færslan hlýtur er upphafsdagsetning tímabilsins sem er þjappað, til dæmis fyrsti dagur mánaðarins (ef færslunum er þjappað eftir mánuðum). Eftir þjöppunina er enn hægt að sjá hreyfingar fyrir hvern reikning reikningsársins á undan.
Eftir þjöppunina er efni eftirfarandi reita alltaf varðveitt: Eignanr., Afskriftabókarkóti, Eignabókunaryfirflokkur, Eignabókunartegund, Hluti af bókfærðu virði, Hluti afskriftagrunns, Eignabókunarflokkur og Tegund fylgiskjals. Með aðgerðinni Varðveita innihald reita er líka hægt að varðveita efni þessara viðbótarreita: Númer fylgiskjals, Endurflokkunarfærsla, Endurmatsfærsla, Altæk vídd 1 - Kóti og Altæk vídd 2 - Kóti.
Fjöldi færslna sem verða til í keyrslunni Dagsetningarþjöppun ræðst af fjölda afmarkana sem settar eru, reitum sem eru sameinaðir og lengd tímabilsins sem er valið. Það verður alltaf minnst ein færsla. Þegar keyrslu er lokið má sjá útkomuna í töflunni Dags þjöppun dagbóka .
Viðvörun |
---|
Dagsetningaþjöppun eyðir færslum svo að tryggara er að taka alltaf afrit af gagnasafni áður en keyrslan er sett í gang. |
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphafsdagsetning | Hér er færð inn upphafsdagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar eignafærslur frá þessari dagsetningu til Lokadagsetning. |
Lokadagsetning | Hér er skráð lokadagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar eignafjárhagsfærslur frá Upphafsdagsetning til þessarar dagasetningar. |
Lengd tímabils | Valin er lengd tímabilsins sem sameinuðu færslurnar ná yfir. Ef valin var tímabilið Fjórðungur, Mánuður eða Vika eru eingöngu færslur með sameiginlegu reikningstímabili þjappaðar. |
Færslutexti | Færa inn texta fyrir færslur sem verða til í keyrslunni. Sjálfgefni textinn er Dagsetningarþjöppun. |
Varðveita reitainnihald | Valið ef varðveita á innihald tiltekinna reita jafnvel þótt færslum sé þjappað. Því fleiri reitir sem eru valdir, þeim mun ítarlegri verða þjöppuðu færslurnar. Ef ekki er valinn neinn þessara reita, stofnar keyrslan eina færslu á dag, viku eða öðru tímabili eftir þeirri tímalengd sem var valin í reitnum Lengd tímabils. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |