Opnið gluggann Dags.þj. forðahöfuðbók.
Þjappar fjárhagsfærslur forða. Færslurnar eru tengdar svo að þær taki minna pláss í gagnagrunninum.
Forðafærslum er hægt að þjappa ef þær birtast á lokuðum reikningsárum.
Þjöppunin sameinar margar gamlar færslur í eina nýja. Til dæmis er hægt að þjappa forðafærslum frá liðnum árum svo að það séu aðeins ein kreditfærsla og ein debetfærsla á reikning í hverjum mánuði. Upphæðin í nýju færslunni er samtala allra þjöppuðu færslnanna. Dagsetningunni sem er úthlutað er það tímabil sem á að þjappa, eins og fyrsti dagur mánaðar (ef færslur eru þjappaðar eftir mánuðum). Eftir þjöppunina er enn hægt að sjá hreyfingar fyrir hvern reikning reikningsársins á undan.
Eftir þjöppunina er efni eftirfarandi reita alltaf varðveitt: Bókunardags., Forðanr., Forðaflokkur nr., Tegund færslu, Magn, Heildarkostnaður, Heildarverð, og Reikningshæft.
Með aðgerðinni Varðveita innihald reita er líka hægt að varðveita efni þessara viðbótarreita:
Fjöldi færslna sem keyrslan Dags.þj. forðahöfuðbók skilar veltur á fjölda afmarkana, reitum sem eru sameinaðir og þeirri lengd tímabils sem valin er. Það er alltaf minnst ein færsla. Þegar keyrslu er lokið má sjá útkomuna í glugganum Dags.þjöppun dagbóka.
![]() |
---|
Dagsetningaþjöppun eyðir færslum svo að tryggara er að taka alltaf afrit af gagnasafni áður en keyrslan er sett í gang. |
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphafsdagsetning | Hér er færð inn upphafsdagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar forðafærslur frá þessari dagsetningu til lokadagsetningar. |
Lokadagsetning | Hér er skráð lokadagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar forðafærslur frá upphafsdagsetningu til þessarar dagsetningar. |
Lengd tímabils | Lengd þess tímabils sem sameina á færslur í er valið. Til að sjá valkostina skal velja reitinn. Ef valin var tímabilið Fjórðungur, Mánuður eða Vika eru eingöngu færslur með sameiginlegu reikningstímabili þjappaðar. |
Færslutexti | Færa inn texta sem á að fylgja færslum sem verða til í keyrslunni. Sjálfgefni textinn er Dagsetningarþjöppun. |
Númer fylgiskjals | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Númer fylgiskjals. |
Kóti vinnutegundar | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Kóti vinnutegundar. |
Verk nr. | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Verk nr.. |
Mælieiningarkóti | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Mælieiningarkóti. |
Tegund uppruna | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Tegund uppruna. |
Upprunanúmer | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Upprunanúmer. |
Reikningshæft | Velja gátreitinn til að varðveita efni reitsins Reikningshæft. |
Varðveita víddir | Smellt er á reitinn til að velja víddarupplýsingar sem á að varðveita þegar færslum er þjappað. Þjappaðar færslur verða ítarlegri eftir því sem kosið er að varðveita meiri víddarupplýsingar. Frekari upplýsingar eru í Vídd. |
![]() |
---|
Þegar valdir eru reitir til að varðaveita gildir að því fleiri reitir sem eru valdir, þeim mun ítarlegri verða þjöppuðu færslurnar. Ef ekki er valinn neinn reitur, stofnar keyrslan eina færslu á dag, viku eða öðru tímabili eftir þeirri tímalengd sem var valin í reitnum Lengd tímabils. |
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |