Þegar kostnaðarauka hefur verið úthlutað og fylgiskjalið bókað er kostnaðurinn vegna kostnaðaraukans bókaður í fjárhagsreikninga og tengdur birgðafærslum.
Bókaðan kostnaðarauka er að finna í þrem mismunandi gluggum eftir því að hvaða upplýsingum er leitað um kostnaðaraukann. Hugsanlegt er að:
-
Skoða kostnaðaraukann sem fjárhagsfærslu.
-
Skoða kostnaðaraukann sem virðisfærslu.
-
Kostnaðaraukinn skoðaður frá birgðafærslu.
Eftirfarandi ferli á við um leit að bókaðri upphæð í fjárhagsreikningum. Hægt er nota sama ferli fyrir kostnaðarauka sem bókaður er frá innkaupaskjali og kostnaðarauka sem bókaður er frá söluskjali.
Bókaður kostnaðarauki skoðaður:
í reitnum Leit skal færa inn Bókaðir sölureikningar ef kostnaðaraukinn var bókaður úr söluskjali og velja svo tengdan tengil.
Hafi kostnaðaraukinn verið bókaður úr innkaupaskjali, opnið gluggann Bókaðir innk.reikningar.
Opna má hvaða reikning sem er.
Á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Færsluleit.
Á flýtiflipanum Færsla fylgiskjals veljið Fjárhagsfærsla. Á flipanum Aðgerðir í flokknum Síða veljið Sýna. Glugginn Fjárhagsfærslur opnast.
Í glugganum Fjárhagsfærslur er hægt að skoða upphæðirnar sem voru bókaðar á fjárhagsreikninga þegar reikningurinn var bókaður.
Til athugunar |
---|
Það fer eftir almenna bókunargrunninum á hvaða reikning kostnaðaraukinn er bókaður. Þegar kostnaðaraukanúmerið sem notað var fyrir sölureikninginn var sett upp var kostnaðaraukanúmerið fest við almennan vörubókunarflokk og VSK-vörubókunarflokk. Tengja þarf þessa bókunarflokka við fjárhagsreikning bæði í almennum bókunargrunni og VSK-bókunargrunni fyrir hverja samsetningu framleiðslu- og viðskiptabókunarflokks sem ætlunin er að nota með þessu kostnaðaraukanúmeri. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |