Hægt er að sjá viðhaldskostnaðinn þegar skoðaðar eru upplýsingar um eign.
Skoðun viðhaldskostnaðar:
Í reitnum Leita skal færa inn Eignalisti og velja síðan viðkomandi tengi.
Veljið eignina sem á að skoða og veljið því næst Afskriftabækur af flipanum Færsluleit.
Í glugganum Eignaafskriftabækur veljið eignaafskriftabók og síðan flipann Heim veljið Upplýsingar. Glugginn Eignaupplýsingar opnast.
Á flýtiflipanum Almennt er reiturinn viðhald valinn. Glugginn Viðhaldsfærslur opnast. Færslurnar á bak við upphæðina í glugganum Eignaupplýsingar sjást í þessum glugga.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |