Nota má gluggann Þjón.verðleiðréttingarflokkur til að setja upp verðleiðréttingaflokka til að leiðrétta þjónustuverðlagningu vegna þjónustuvöru. Til dæmis má setja upp verðleiðréttingarflokka sem leiðrétta verð á flutningi eða varahlutum.

Uppsetning þjónustuverðleiðréttingarflokka

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Leiðréttingarflokkar þjónustuverðs og velja síðan viðkomandi tengil.

  2. Nýr þjónustuverðleiðréttingarflokkur er stofnaður. Á flipanum Heim í flokknum Nýtt skal velja Nýtt.

  3. Fyllt er í reitina Kóti og Lýsing.

  4. Á flipanum Aðgerðir í flokknum Almennt veljið Upplýsingar. Þá opnast glugginn Sundurliðun þjón.verðleiðr..

  5. Í reitnum Tegund er færð inn tegund færslunnar sem á að leiðrétta.

  6. Ef þjónustuverðleiðréttingarflokkurinn á að leiðrétta aðeins eina tiltekna færslu er númer þessarar færslu fært inn í reitinn Nr. . Ef reiturinn er hafður auður leiðréttir leiðréttingarflokkurinn ALLAR færslur af tegundinni sem skilgreind er í reitnum Tegund.

  7. Ef þjónustuverðleiðréttingarflokkurinn á að leiðrétta þjónustuverð sem tengjast aðeins einni tiltekinni gerð þjónustu þarf að fylla út reitinn Tegund vinnu. Ef reiturinn er hafður auður verður hann hundsaður.

  8. Í reitinn Lýsing má færa inn stutta lýsingu á þjónustuverðleiðréttingunni.

  9. Ef þjónustuverðleiðréttingarflokkurinn á að leiðrétta þjónustuverð sem tengjast aðeins einum tilteknum vörubókunarflokki þarf að fylla út reitinn Alm. vörubókunarflokkur. Ef reiturinn er hafður auður verður hann hundsaður.

Skrefin eru endurtekin fyrir hvern flokk þjónustulína sem á að leiðrétta út frá verðleiðréttingarflokki.

Ábending

Sjá einnig