Hægt er að flytja birgðagreiningaryfirlit út í Microsoft Excel. Þar er hægt að greina og vinna við Microsoft Dynamics NAV gögn með öllum aðgerðum í Excel.

Birgðagreiningaryfirlit flutt út í Excel:

  1. Í reitnum Leita skal færa inn Birgðagreining eftir víddum og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Á flýtiflipanum Valkostir í reitnum Sýna er valið annaðhvort Raunupphæðir eða Áætl. upphæðir. Ef valið er Áætl. upphæðir verður reiturinn Upphæðarreitur að innihalda Upphæð.

  3. Hinir reitirnir á flýtiflipunum eru fylltir út.

  4. Þegar lokið er við að fylla út reitina er farið á flipann Færsluleit , flokkinn Aðgerðir og Flytja út í Excel valið.

Viðvörun
Hámarksfjöldi lína í Excel er um það bil 65000. Ef greiningaryfirlitið býr til of margar línur birtast villuboð í Excel.

Til athugunar
Í Excel sýna dálkfyrirsagnirnar alltaf kótann. Ef glugginn Greining eftir víddum í reitnum Sýna dálkheiti sýna dálkfyrirsagnirnar bæði kóta og heiti.

Ábending

Sjá einnig