Þegar lokið er við að setja upp söluherferð, ákveða hvaða hluta á að höfða til með herferðinni og velja upphafs- og lokadagsetningu, er afsláttarprósenta sem viðskiptamaður fær af einstaka vörum skráð í línum í glugganum Sölulínuafslættir.

Sölulínuafsláttur stofnaður fyrir söluherferð:

  1. Í reitnum Leit skal færa inn Söluherferð og velja síðan viðkomandi tengil.

  2. Opna skal viðeigandi herferðarspjald.

  3. Á flipanum Færsluleit í flokkinum Söluherferð skal velja Sölulínuafslættir. Glugginn Sölulínuafslættir opnast.

  4. Reiturinn Tegund sölu er stilltur á Söluherferð og reiturinn Sölukóði inniheldur númer söluherferðarinnar. Þar sem söluherferðin nær yfir tímabilið sem skilgreint er á söluherferðarspjaldinu fyrir allar vörur með söluverð er ekki hægt að breyta upphafs- og lokadagsetningum í einstökum línum. Kerfið flytur gildin í upphafs- og lokadagsetningarreitunum á söluherferðarspjaldinu í línurnar í glugganum Sölulínuafslættir.

  5. Fylla inn í reitina Tegund, Kóti og Mælieining og Línuafsl.%. Einnig er hægt að fylla í reitinn Afbrigðiskóti ef mörg afbrigði eru af vörunni. Ef dálkurinn er ekki sýnilegur skal opna flýtivalmyndina fyrir dálkhausa og smella á Velja dálka til að bæta henni við.

  6. Ef viðskiptamaðurinn þarf að kaupa inn lágmarksmagn til að fá afsláttarprósentuna í söluherferðinni er reiturinn Lágmarksmagn fylltur út.

Skrefin eru endurtekin við hverja vöru sem sölulínuafsláttur er stofnaður fyrir.

Ábending

Sjá einnig