Hægt er aðgæta hvort vara sem þörf er á til að hægt að á anna pöntun sé á lager og ef svo er ekki, hvenær hún kemur á lager. Auk þess er hægt að taka frá vöru sem er tiltæk til að tryggja að nota megi hana síðar.
Til að athuga hvort vörur séu tiltækar fyrir allar pantanir
Í reitnum Leit skal færa inn Afgreiðslustöð og velja síðan viðkomandi tengil.
Velja skal pöntun og á flipanum Færsluleit, í flokknum Áætlun, skal velja Yfirlit yfir eftirspurn.
Þetta ræsir útreikning á því hvort vörur séu tiltækar. Glugginn Yfirlit eftirspurnar opnast.
Í glugganum Yfirlit yfir eftirspurn stækkið vöruflokkin og skoðið upplýsingar um ráðstöfunarbirgðir vörunar. Til dæmis er hægt að sjá hversu margar vörur eru í birgðum. Einnig er hægt að sjá hvort og þegar vara verður tiltæk ef hún er í biðpöntun, þ. e. Tegund uppruna = Innkaup, eða hvort hún hafi verið tekin frá.
Til að athuga hvort vörur séu tiltækar fyrir eina pöntun
Í reitnum Leit skal færa inn Afgreiðslustöð og velja síðan viðkomandi tengil.
Velja skal pöntun sem skoða á. Á flipanum Færsluleit, í flokknum Afgreiðslustöð flokkur, skal velja Sýna fylgiskjal. Glugginn Þjónustupöntun opnast.
Á flipanum Færsluleit, í flokknum Panta, skal velja Yfirlit yfir eftirspurn.
Þetta ræsir útreikning á hvort vara er tiltæk og opnar gluggann Yfirlit eftirspurnar.
Í glugganum Yfirlit yfir eftirspurn stækkið vöruflokkin og skoðið upplýsingar um ráðstöfunarbirgðir vörunar. Til dæmis er hægt að sjá hversu margar vörur eru í birgðum. Einnig er hægt að sjá hvort og þegar vara verður tiltæk ef hún er í biðpöntun, þ. e. Tegund uppruna = Innkaup, eða hvort hún hafi verið tekin frá.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |