Hægt er að setja upp sjálfgefna VSK-viðskiptabókunarflokka og sjálfgefna VSK-vörubókunarflokka og láta Microsoft Dynamics NAV setja inn kóta VSK-viðskipta- eða vörubókunarflokks með kóta almenns viðskipta- eða vörubókunarflokks. Ef ekki á að gera þetta verður að úthluta kótum á viðeigandi fjárhagsreikninga.

Nánari upplýsingar um hvernig sjálfgefnir VSK-bókunarflokkar eru settir upp eru í Hvernig á að setja upp sjálfgefna VSK-viðskiptabókunarflokka og Hvernig á að setja upp sjálfgefna VSK-vörubókunarflokka.

Úthluta VSK-bókunarflokkum til fjárhagsreikninga

  1. Í reitinn Leita skal færa inn Bókhaldslykill og velja síðan viðkomandi tengi.

  2. Til að sjá valmöguleikana, veljið Alm. bókunartegund reitinn og síðan er valinn viðeigandi valkostur Sala eða kaup.

  3. Í reitinn VSK viðsk.bókunarflokkur er færður inn viðeigandi bókunarflokkur.

  4. Í reitnum VSK vörubókunarflokkur er færður inn viðeigandi bókunarflokkur.

Ábending

Sjá einnig