Með hönnun hlutverkamiðaða viðmótsins má fá skjótt yfirlit yfir þær upplýsingar sem við koma starfi hvers notanda, sem gerir honum kleift að einbeita sér að sínum eigin verkum umfram öll önnur.

Í nýrri hönnun viðmótsins er hægt að:

Rannsóknir sýna að það sem reynist starfsmönnum hvað erfiðast eru sífelldar truflanir og að þurfa að vinna mörg verk í einu. Nýja viðmótið í Microsoft Dynamics NAV stuðlar að því að leysa þessi vandamál með hlutverkamiðaðri hönnun og viðmóti sem notendur þekkja og er auðvelt að nota.

Hlutverkamiðuð hönnun

Í stað vörpunar í byggingu gagnagrunnsins varpar hlutverkamiðað viðmót í þá verkhluta sem hlutverk notanda á að vinna. Þessi nýja hlutverkamiðaða fletting minnkar flækjustigið með því að sýna þau svæði forritsins sem eru hlutverki notanda viðkomandi. Með því að fjarlægja úr augsýn þá hluta forritsins sem sjaldan eru notaðir má minnka magn upplýsinga sem fara þarf í gegnum.

Office-notendur

Outlook er auðvelt í notkun því það er hannað utan um hvernig fólk vinnur í raun. Hlutverkamiðaða hönnunin er byggð á Microsoft Office Fluent notandaviðmótinu með það að markmiði að gera vinnuumhverfi notanda þægilegt og einfalt.

Aðgerðir í nýju hönnuninni

Nýja verksniðna byggingin við flettingu auðveldar notanda að fara í gegnum nauðsynlegar upplýsingar og gefur honum kost á að einbeita sér að aðalstarfssviði sínu samkvæmt hlutverki sínu hjá fyrirtækinu.

  • Í Mitt hlutverk hefur notandi aðgang að þeim ferlum sem hann tekur þátt í.
    Role Center
    Mynd 1: Mitt hlutverk
  • Á listasvæðum birtast verkhlutar og upplýsingar viðkomandi markmiða í vinnuferli saman í einum glugga.
    List page
    Mynd 2: Listasvæði
  • Verkhluta fyrir hvert skref í ferlinu er að finna á verksíðum.
    Task page
    Mynd 3: Verksíða

Á borðanum birtast þær skipanir sem oftast eru notaðar í gefnu samhengi.

Upplýsingakassar minnka þörfina á leit með því að birta allar nauðsynlegar upplýsingar í gefnu samhengi í einum glugga.

Að auki er gefinn kostur á að sérstilla alla þessa hluta forritsins svo að þeir falli betur að þörfum notanda. Frekari upplýsingar eru í Customizing Role Center and Pages.

Verksniðin fletting

Á yfirlitssvæðinu má sjá tengla á alla listana, svo sem Viðskiptamenn, Lánardrottna og Vörur, sem mest eru notaðir.

Í stað þess að birta tengla yfir alla þá lista sem í boði eru í Microsoft Dynamics NAV birtast aðeins þeir listar sem hlutverk notanda þarf að notast við. Aðgang má fá að hverjum ferlanna og verkhlutanna í verkinu.

Ef finna þarf svæði sem venjulega er ekki þörf á er hægt að smella á hnappinn Deildir neðst á yfirlitssvæðinu. Á deildasíðunni má finna öll svæði forritsins sem notandi hefur heimild til að nota. Einnig er hægt að nota reitinn Leita efst til hægri á slóðarstikunni til að leita að síðu, skýrslu eða yfirliti.

Með hnöppunum Til baka og Áfram í stýringum Microsoft Dynamics NAV vinstra megin við slóðarstikuna er hægt að fletta fram og til baka í þeim síðum sem heimsóttar hafa verið.

Mitt hlutverk

Mitt hlutverk er eins konar persónuleg heimasíða notandans í Microsoft Dynamics NAV. Microsoft Dynamics NAV býður upp á mörg mismunandi hlutverk (mitt hlutverk) notenda í mismunandi störfum innan fyrirtækisins. Yfirmaður úthlutar notanda hlutverki (Mitt hlutverk) og getur sérsniðið hlutverk hans til að ganga úr skugga um að það gefi upplýsingarnar sem notandinn þarf á að halda fyrir viðkomandi starf. Síðan getur notandinn gert viðbótarbreytingar til að viðmótið henti verklagi hans betur. Frekari upplýsingar eru í Customizing Role Center and Pages.

Listasvæði

Listar yfir skjöl, viðskiptamenn, vörur, vinnublöð o.s.frv. hafa verið auknir og búið til verkmiðað vinnusvæði. Þar má sjá frekari upplýsingar um valin skjöl í upplýsingakössum. Algengustu verkhlutarnir birtast á borðanum.

Nánari upplýsingar um listaða staði er að finna í List Places.

Verksíður

Verksíður virka í Microsoft Dynamics NAV á sama hátt og tölvupóstur opnast í Outlook. Þær opnast efst í yfirlitslaginu (glugganum sem inniheldur yfirlitssvæðið) og á þeim er valmyndarstika, borði og upplýsingakassar. Í Microsoft Dynamics NAV hafa öll skjöl, sölupantanir, viðskiptamannaspjöld, vöruhúsamóttökur o.s.frv. verið færð á verksíður.

Eins og á listasvæðum stuðlar borðinn að því að draga úr þeim verkhlutum sem algengast er að séu unnir í hverju samhengi fyrir sig. Til dæmis á sölupöntun er algengast að nota þurfi skipanirnar Gefa út, Prenta pöntunarstaðfestingu, Stofna birgðatínslu o.s.frv. Í stað þess að leita þurfi að þeim í valmyndunum birtast þeir stighækkaðir á borðanum.

Flipar eru nú flýtiflipar sem má fella saman eða stækka til að stjórna því hversu miklar upplýsingar sjást í einu. Einnig birtast línur á flýtiflipum. Til að fella saman eða stækka flýtiflipann skal smella á litlu örina lengst til hægri.

Hægt er að birta reiti úr flýtiflipa í haus flýtiflipans þegar svæðið er fellt saman. Þannig má sjá mikilvæga samantekt upplýsinga án þess að stækka flýtiflipann.

Hægt er að velja hvaða upplýsingar birtast í haus flýtiflipans þegar flýtiflipinn er felldur saman.

Borðinn

Á borðanum, beint fyrir neðan valmyndarstikuna, má nálgast þá verkhluta og valmyndaratriði sem mest eru notuð með einum smelli, í stað þess að þurfa að fletta í gegnum valmyndir til að komast að þeim.

Hver Microsoft Dynamics NAV er hannaður með það að markmiði að mikilvægustu verkhlutar hvers notanda birtist í skipunum á valmyndarstikunni eða í verkhlutum á borðanum. Þó getur notandi viljað gera breytingar á borðanum eftir þörfum. Bæta má skipunum eða aðgerð við borðann með valkostinum Sérsníða borða.

Frekari upplýsingar um sérstillingu borðans eru í Borði.

Upplýsingakassar

Upplýsingakassar á listasvæðum og verkhlutasíðum veita viðbótarupplýsingar. Þetta þýðir að hægt er að finna tengdar upplýsingar um pöntun, viðskiptavin, reikning, vöru eða lánardrottinn á fljótlegan hátt. Þetta er gagnlegt til að til að gera traustar viðskiptaákvarðanir í tæka tíð. Til dæmis á listasvæðinu Viðskiptamenn er hægt að nota upplýsingakassann Sölusaga viðskiptamanns til að fá snöggt yfirlit yfir talnagögn sölu viðskiptamanns án þess að opna viðskiptamannaspjaldið. Í Upplýsingakassanum er teljari og tenglar í sölupantanir, tilboð, reikninga o.s.frv., þannig að hægt er að kafa niður í skjalið eins og þörf krefur. Á flýtiflipanum Athugasemdir er hægt að bæta við athugasemdum fyrir færslur eða eiga rafræn samskipti við önnur notendur um tiltekið skjal. Frekari upplýsingar eru í Write Notes.

Leita að síðum

Finna má hvaða síðu sem er innan uppsetningarinnar með því að nota reitinn Leita að síðum efst í hægra horni slóðarstikunnar.

Þegar byrjað er að slá inn stafi í leitarreitarsíðuna birtist fellilisti með síðuheitum með stöfunum sem slegnir eru inn. Fellilistinn breytist eftir því sem fleiri stafir eru slegnir inn og hægt er að velja réttu síðuna úr listanum þegar hún birtist. Annar reiturinn í fellilistanum sýnir slóðina á síðurnar sem finnast.

Sjá einnig

Working with Microsoft Dynamics NAV

Tilvísun

Leita
Personalize the User Interface
Write Notes