Tilgreinir kóta þeirrar númeraraðar sem verður notuð til að úthluta fylgiskjalsnúmerum á línur færslubókar í þessu birgðabókarsniðmáti. Skoða má uppsettar númeraraðir í töflunni Númeraröð með því að velja reitinn.

Númeraraðirnar sem eru færðar inn í sniðmátið verða afritaðar í bókarkeyrslur sem eru settar upp samkvæmt sniðmátinu. Þó er hægt að breyta númeraröðinni í bókarkeyrslunum.

Ef númeraröð er einnig í reitnum Bókunarnúmeraröð er númeraröðin í reitnum Númeraröð aðeins notuð til þess að úthluta númeri til bráðabirgða. Annað númer verður sett í stað bráðabirgðanúmersins við bókun.

Ef færslubókin er ítrekunarbók er ekki hægt að færa númeraröð í þennan reit. Ef setja á númeraröð í sniðmát ítrekunarbókar er reiturinn Bókunarnúmeraröð notaður.

Ábending

Sjá einnig