Tilgreinir númer viðskiptamannsins sem vörur á reikningnum verða sendar til.
Skoða má viðskiptamannanúmer í töflunni Viðskiptamaður með því að smella á reitinn.
Þegar númer viðskiptamanns er fært hér inn sækir kerfið upplýsingar um þennan viðskiptamann frá viðskiptamannsspjaldi.
Ef aðaltengiliður tengist selt-til viðskiptamanninum sem valinn er hér afritar forritið efni reitsins Aðaltengiliður nr. á viðskiptamannaspjaldinu í reitinn Selt-til nr. tengiliðar og uppfærir reitinn Selt-til - tengiliður með nafni aðaltengiliðar.
Hægt er að breyta þessum reit ef afhending hefur ekki verið bókuð. Ef reynt er að skrá annað viðskiptamannsnúmer þarf að svara eftirfarandi spurningu áður en kerfið gerir breytinguna:
Á að breyta reitnum Selt-til viðskm.nr.?
Ef það er samþykkt skráist nýtt númer viðskiptamanns í söluhaus og tilheyrandi sölulínur.
Á öllum söluhausum eru tvö viðskiptamannanúmer, annað fyrir viðskiptamanninn sem fær vörurnar afhentar (Selt-til - viðskm.nr.) og hitt fyrir viðskiptamanninn sem reikningurinn verður sendur til (Reikn.færist á viðskm.).
Ef annað er ekki tekið fram kemur númer viðtakanda sjálfkrafa í reitinn Reikn. færist á viðskm. og reikningurinn verður þá sendur á þann viðskiptamann sem fær vörurnar afhentar.
Ef fram kemur annað númer viðskiptamanns í reitnum Reikn. færist á viðsk.m. á viðskiptamannaspjaldinu er númer viðskiptamannsins, sem reikningsfært verður á, sótt þangað. Allar upplýsingar, sem tengjast viðskiptamanni, um reikningsútgáfu, afslátt, upplýsingar o.s.frv. eru miðaðar við þann sem reikningsfært er á en ekki þann sem fær vörurnar.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |