Tilgreinir númer reikningsins í samsteypufyrirtæki, sem færa skal stöðu reikningsins á, sé hún í kredit. Mest má rita 20 stafi, bæði tölustafi og bókstafi.
Þegar um er að ræða dótturfyrirtæki er hægt að færa reikningsnúmer móðurfélagsins í þennan reit. Reikningsnúmerið er einnig notað þegar keyrslan Flytja út samstæðu er keyrð.
Ef yfirfæra þarf stöðu reikningsins daglega er heppilegt að tilgreina reikningsnúmer fyrir bæði Samstæðu-debetreikn. og Samstæðu-kreditreikn. vegna þess að:
-
Ekki eru fluttar upphæðir sem eru 0, en á reikningi þar sem heildarstaðan er 0 geta komið fyrir dagar þar sem staðan er ekki 0.
-
Suma daga getur staðan verið í kredit þótt gert sé ráð fyrir að heildarstaða tímabilsins verði í debet.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |