Tilgreinir hvernig greina eigi víddaupplýsingar sem bókaðar hafa verið í fjárhagsfærslum, áætlunum o.s.frv. Með því að nota greiningaryfirlit er hægt að sækja upplýsingar um víddir samkvæmt viðmiðum sem notandinn setur. Síðan er hægt að rannsaka þróun og greina tengsl í samræmi við víddaupplýsingar sem bókaðar hafa verið.

Í hverju greiningaryfirliti er hægt að tilgreina allt að fjórar víddir ásamt því að tilgreina viðmið fyrir fjárhagsreikninga, dagsetningar og fyrirtækiseiningar. Einnig er hægt að setja afmarkanir á víddir sem ekki eru í greiningaryfirlitinu með því að smella á Greining, Afmarkanir á spjaldi greiningaryfirlitsins. Þannig er hægt að stofna mismunandi greiningaryfirlit í mismunandi tilgangi. Til dæmis er hægt að vera með greiningaryfirlit sem tengist sölu á tilteknu svæði á tilteknu tímabili. Þegar greiningaryfirlit er stofnað þarf að uppfæra það með því að smella á Aðgerðir, Uppfæra á spjaldi greiningaryfirlitsins eða með því að nota Uppfæra greiningaryfirlit. Kerfið safnar þá saman aðeins þeim fjárhagsfærslum sem uppfylla víddaviðmiðin og aðrar afmarkanir sem notandinn setur.

Hægt er að skoða og greina þessar víddaupplýsingar í glugganum Greining eftir víddum þar sem hægt er að skoða fylkisglugga með ásum sem skilgreindir eru af notandanum. Með því að endurskilgreina ásana og beita afmörkunum er hægt að búa til mjög greinargóða sundurliðun á því hvernig víddir hafa verið bókaðar og hvaða tengsl eru milli vídda.

Mikilvægt
Ef gátmerki hefur ekki verið sett í reitinn Uppfæra við bókun þarf að smella á Aðgerðir, Uppfæra eða nota keyrsluna Uppfæra greiningaryfirlit til að tryggja það að greiningaryfirlit hafi verið uppfært með nýjustu bókuðu færslunum.

Sjá einnig