Tilgreinir hvernig VSK-útreikningi skuli háttað vegna innkaupa eða sölu á vöru þar sem um tiltekna samsetningu VSK-viðskiptabókunarflokks og VSK-vörubókunarflokks er að ræða.
Til að sjá tiltæka valmöguleika skal velja reitinn.
Valkostur | Lýsing |
---|---|
Venjul. VSK | Með þessum valkosti má láta kerfið reikna út VSK á selda eða keypta vöru þar sem þessi tiltekna samsetning viðskiptabókunarflokks og vörubókunarflokks á við. |
Bakfærður VSK | Þessi kostur er valinn vegna viðskipta við ESB-lönd/svæði þar sem kaupanda er gert að reikna út VSK og gera VSK-reikninga upp við skattayfirvöld. Einnig þarf að muna að fylla út reitinn Reikningur bakfærðs VSK.Val á þessum kosti hefur engin áhrif á ársreikninga fyrirtækisins. Við sölu á vörum með bakfærðum VSK er VSK hvorki reiknaður né frádreginn. Við kaup á vörum reiknar kerfið upphæð VSK, debetfærir á innkaupareikning VSK og kreditfærir á reikning bakfærðs VSK. |
Eingöngu VSK | Þessi kostur er valinn þegar upphæðin sem á að bóka er með tiltekna samsetningu VSK-viðskiptabókunarflokks og VSK-vörubókunarflokks sem er aðeins með VSK. Þessi kostur kann til dæmis að henta þegar leiðréttingarfærsla er gerð til leiðréttingar á villu í VSK-útreikningi. |
Söluskattur | Þessi kostur er einungis notaður eigi kerfið að fást við bandarískan söluskatt í stað VSK. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |