Stofnar bankareikningsyfirlit þegar bankayfirlit hefur verið stemmt af gagnvart innri bankareikning með aðgerðinni Bankareikn.afstemming. Yfirlitið má skoða með því að velja Bankareikn., Yfirlit á bankareikningsspjaldi.
Hér má skoða öll bankayfirlit sem notandi hefur stemmt af gagnvart bankareikningi. Með þessum starfshætti má halda skrá um öll bankareikningayfirlit í kerfinu þannig að óþarfi er að varðveita á pappír þau afrit af bankareikningayfirlitum sem berast frá banka.
Bankareikningsyfirlit birtist ásamt haus og ýmsum tengdum línum.
Í hausnum koma fram almennar upplýsingar, svo sem númer á bankayfirliti, númer afstemmds bankareiknings og lokastaða bankayfirlits.
Í línunum koma fram þau viðskipti á bankayfirliti sem hafa verið stemmd af gagnvart bankareikningnum í kerfinu.
Efni reita í töflunni Bankareikningsyfirlit er ekki hægt að breyta þar sem Afstemming bankareikninga hefur verið bókuð.