Tilgreinir viðskiptagerð viðskiptamannsins til að tengja færslur sem búnar voru til fyrir þennan viðskiptamann með viðeigandi fjárhagsreikning samkvæmt bókunargrunninum.

Kótinn segir til um hvaða almenna viðskiptabókunarflokki þessi viðskiptamaður tilheyrir. Hægt er að setja upp almenna viðskiptabókunarflokka til að flokka viðskiptamenn eftir landsvæðum (heimaland, ESB-lönd/-svæði, lönd utan Evrópu o.s.frv.), eftir tegund viðskipta eða til að greina á milli einkafyrirtækja og ríkisstofnana.

Þegar bókuð er færsla þar sem þessi viðskiptamaður kemur við sögu notar kerfið þennan kóta ásamt kóta almenns vörubókunarflokks í glugganum Alm. bókunargrunnur. Almennur bókunargrunnur tilgreinir reikninga (fyrir sölu, afsláttarupphæðir o.s.frv.) sem kerfið bókar á.

Ábending

Sjá einnig