Opnið gluggann Vátryggingadagbók.
Hér koma fram bókaðar vátryggingafærslur sem eru flokkaðar og skipt niður eftir dagbókarnúmerum. Hægt er að tilgreina hvaða dagbókarfærslur eiga að koma fram með því að setja afmörkun. Mikilvægt er að setja afmörkun, því annars er hætta á flóði upplýsinga í skýrslunni.
Hægt er að skilgreina skýrsluna svo að hún sé virk í bókunarferlinu, það er að segja að hægt sé að prenta hana þegar bókað er. Til þess að prenta dagbókina þegar færslubókin er bókuð er farið í svæðið Aðgerð, flokkinn Vinna og Bóka og prenta valið í færslubókinni. Skýrsluna má nota til heimildaskráningar á bókuðu færslunum eða fyrir endurskoðun.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með skýrslur eru í Skoða prófunarskýrslur fyrir bókun, Hvernig á að skoða og prenta skýrslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |