Opnið gluggann Innkaup - Reikningur.
Sýnir innkaupareikninga. Hægt er að prenta alla eða valda reikninga eftir að þeir hafa verið bókaðir.
Tilgreina má efni skýrslunnar með því að setja afmarkanir. Ef engar afmarkanir eru settar nær skýrslan til allra færslna.
Valkostir
Fjöldi eintaka: Í þennan reit er hægt að færa inn þann fjölda afrita af innkaupareikningnum (auk frumritsins) sem á að prenta.
Sýna innri upplýsingar: Setja má gátmerki í þennan reit ef á prentaða fylgiskjalinu eiga að koma fram upplýsingar sem eru eingöngu til innri nota.
Skrá samskipti: Sett er gátmerki í þennan reit ef skrá á samskiptin.
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með skýrslur eru í Skoða prófunarskýrslur fyrir bókun, Hvernig á að skoða og prenta skýrslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |