Opnið gluggann Aldursgreindar kröfur.

Sýnir aldursgreiningu viðskiptakrafna. Kerfið reiknar aldursgreininguna samkvæmt gjalddaga, bókunardagsetningu eða dagsetningu fylgiskjals eftir því hvað er valið á flipanum Valkostir. Tilgreina þarf dagsetninguna sem reikna á aldursgreiningu frá og lengd tímabilsins sem hver dálkur á að innihalda gögn fyrir. Ef reiturinn Prenta upphæðir í SGM er auður eru kröfur teknar saman eftir gjaldmiðilskótum neðst í skýrslunni.

Valkostir

Aldursgreina frá: Rita skal dagsetninguna sem reikna skal aldursgreiningu frá.

Aldursgreining eftir: Valið er hvort reikna eigi aldursgreiningu frá gjalddaga, bókunardagsetningu eða dagsetningu fylgiskjals.

Lengd tímabils: Lengd hvers tímabils af þremur er tilgreint; til dæmis má tilgreina "1M" fyrir einn mánuð.

Prenta upphæðir í SGM: Gátmerki er sett í þennan reit ef tilgreina á aldursgreiningu eftir viðskiptamannafærslum.

Prenta upplýsingar: Gátmerki er sett í þennan reit ef skýrslan á að sýna sundurliðaðar færslur sem saman mynda heildarstöðu hvers viðskiptamanns.

Tegund yfirskriftar: Valið er hvort dálkayfirskrift tímabilanna þriggja gefi til kynna dagsetningabil eða fjölda daga síðan skuldin gjaldféll.

Ný blaðsíða á hvern viðskiptam.: Ef tveir eða fleiri viðskiptamenn eiga að vera tilgreindir í skýrslunni er gátmerki sett í reitinn svo að staða hvers viðskiptamanns prentist á nýja síðu.

Prenta í Excel: Gátmerki er sett í gátreitinn ef flytja á gögnin út í Excel töflureikni til frekari greiningar eða uppsetningar fyrir prentun.

Ábending