Tilgreinir afmörkunina sem gerir kleift að sjá yfirlit yfir fylgiskjöl með tilgreindu gildi í reitnum Svardagsetning.
Ef í þessum reit eru upphafs- og lokadagsetningar tímabils samsvara aðeins skjöl með þessa svardagsetningu afmörkuninni.
Ákveðnar reglur eru um innfærslu dagsetninga og dagsetningabila:
Merking | Dæmi | Samsvarandi skjöl |
---|---|---|
Jafnt og | 15 10 02 | Aðeins með svardagsetninguna 15. 10. 02. |
Millibil | 15 12 01..15 01 02 ..15 10 02 | Skjöl með svardagsetningar á tímabilinu 15.12.01 til 15.01.02, að báðum dögum meðtöldum. Skjöl með svardagsetningu 15. 10. 02 eða fyrr. |
Tímabil | p3 | Skjöl með svardagsetningum á þriðja tímabili reikningsársins. |
Annaðhvort eða | 15 12 01|16 12 01 | Með svardagsetningu annaðhvort 15.12.01 eða 16.12.02. Ef færslur eru með báðum svardagsetningum verða þær allar sýndar. |
Einnig má tengja grunnformin saman:
Dæmi | Samsvarandi skjöl |
---|---|
15 15 01|01 12 01..10 12 01 | Skjöl með svardagsetningu annaðhvort 15. 12. 01 eða dagsetningar milli og meðtaldar 01.12. 01og 10. 12. 01. |
..14 12 01|30 12 01.. | Skjöl með svardagsetningar til og með 14.12.01 eða fyrr eða frá og með 30.12.01 eða síðar, þ.e. öll skjöl nema þau sem eru með svardagsetningu frá tímabilinu 15.12.01 til 29.12.01 að báðum dögum meðtöldum. |
Smella má hér til að fræðast meira um innfærslu dagsetninga .
Til athugunar |
---|
Í glugganum Afgreiðslustöð sjást aðeins fylgiskjöl af tegundinni sem er tilgreind í reitnum Fylgiskjalsafmörkun. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |