Opnið gluggann Sölupöntunaruppl..

Glugginn Sölupöntunaruppl. birtist þegar smellt er á Pöntun og síðan á Upplýsingar úr glugganum Sölupöntun. Glugginn sýnir upplýsingar um viðeigandi sölupöntun. Glugginn Sölupöntunaruppl. hefur fimm flipa: Almennt, Reikningsfæra, Afhenda, Fyrirframgreiðsla og Viðskiptam.. Þessir flýtiflipar sýna upplýsingar eins og magn, upphæð, VSK, kostnað og hámarksskuld viðskiptamanns.

Sölupöntunarupplýsingarnar veita góða yfirsýn yfir innihald allrar sölupöntunarinnar, sundurliðun í tilteknum línum sölupöntunar og upplýsingar varðandi bæði reikningsfærslur og afhendingu.

Upphæðirnar í glugganum Sölupöntunaruppl. eru í sama gjaldmiðli og söluskjalið nema annað sé tekið fram.

Flýtifliparnir Almennt, Reikningsfæra og Afhenda

Reitirnir eru þeir sömu á flýtiflipunum Almennt, Reikningsfæra og Afhenda en gildi reitsins er mismunandi í hverjum flýtiflipa:

  • Flýtiflipinn Almennt sýnir upplýsingar um alla sölupöntunina. Heildarmagnið er tiltekið í reitnum Magn á hverri sölulínu.
  • Flýtiflipinn Reikningsfæra sýnir upplýsingar um magn vara sem á að reikningsfæra. Magnið sem á að reikningsfæra er tiltekið í reitnum Magn til reikningsf. á hverri sölulínu.
  • Flýtiflipinn Afhenda sýnir upplýsingar um magn þeirra vara sem á að afhenda. Magnið sem á að afhenda er tiltekið í reitnum Magn til afhendingar á hverri sölulínu.

Upphæðin í reitnum Brúttóupphæð er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Sléttunarnákvæmni reikninga í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil. Kerfið sléttar upphæðirnar í reitunum Upphæð, Afsláttarupphæð birgða, samtals og VSK sem Heildarupphæð með VSK samanstendur af. Upphæðir í reitunum Upphæð, Kostnaður (SGM) og Framlegð (SGM) er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Upph. sléttunarnákvæmni í töflunni Gjaldmiðill fyrir viðeigandi gjaldmiðil.

Reitirnir á flýtiflipunum Almennt, Reikningsfæra og Afhenda sýna eftirfarandi upplýsingar um viðeigandi magn (heildarmagn, magn til reikningsfærslu eða magn til afhendingar) eins og minnst er á að ofan:

Upphæð án VSK

Þessi reitur sýnir nettóupphæð allra lína í sölupöntuninni. Þessi upphæð er ekki með VSK eða afslætti en felur í sér línuafslátt.

Reikningsafsl.upphæð

Þessi reitur sýnir upphæð reikningsafsláttar allrar sölupöntunarinnar. Ef gátmerki er í reitnum Reikna reikn.afsl. í glugganum Sölugrunnur hefur afslátturinn verið reiknaður sjálfkrafa. Annars er hann reiknaður þegar smellt er á Aðgerðir, vísað á Aðgerðir og smellt á Reikna reikningsafsl.

Alls utan VSK

Þessi reitur sýnir heildarupphæð að frátalinni reikningsafsláttarupphæð (án VSK) sölupöntunarinnar.

VSK% eða VSK-upphæð

Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK sem hefur verið reiknuð fyrir allar línur í sölupöntuninni.

Brúttóupphæð

Þessi reitur sýnir heildarupphæð, ásamt VSK. Á flýtiflipanum Reikningsfæra er þetta upphæðin sem er bókuð á reikning viðskiptamanns fyrir allar línur í sölupöntuninni ef sölupöntun er bókuð sem reikningsfærð.

Sala (SGM)

Þessi reitur sýnir upphæðina í reitnum Brúttóupphæð að ofan eins og hún er yfirfærð í SGM.

Upphafleg framlegð (SGM)

Þessi reitur sýnir mismuninn, í SGM, milli upphæða í reitunum Upphæð og Upphaflegur kostnaður (SGM) fyrir sölupöntunina.

Leiðrétt framlegð (SGM)

Þessi reitur sýnir mismuninn, í SGM, milli upphæða í reitunum Upphæð og Leiðréttur kostnaður (SGM) fyrir sölupöntunina. Núll í þessum reitum merkir að engar færslur eru til staðar í útreikning, hugsanlega vegna dagsetningarþjöppunar.

Upphafleg framlegðar%

Þessi reitur sýnir framlegð sem prósentu af upphæðinni í reitnum Upphæð.

Leiðrétt framlegðar%

Þessi reitur sýnir framlegð, leiðrétta samkvæmt breytingum á upphaflegum kostnaði vara, sem prósentur af upphæðinni í reitnum Upphæð.

Magn

Þessi reitur sýnir magn fjárhagsreikningsfærslna, vara og/eða forða í sölupöntuninni. Ef sléttuð upphæð stafar af því að gátmerki er í reitnum Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur er magn varanna á sölupöntuninni plús einn í reitnum Magn.

Pakkningar

Þessi reitur sýnir fjölda pakkninga í sölupöntun.

Nettóþyngd

Þessi reitur sýnir nettóþyngd varanna á sölupöntuninni.

Brúttóþyngd

Þessi reitur sýnir brúttóþyngd varanna á sölupöntuninni.

Rúmmál

Þessi reitur sýnir rúmmál varanna á sölupöntuninni.

Upphaflegur kostnaður (SGM)

Þessi reitur sýnir heildarkostnað, í SGM, fjárhagsreikningsfærslna, vara eða/og forða í sölupöntuninni. Kostnaðurinn er reiknaður sem (einingaverð * magn) viðeigandi vara eða forða.

Leiðréttur kostnaður (SGM)

Þessi reitur birtir heildarkostnað vara í sölupöntuninni, í SGM, sem leiðréttur hefur verið samkvæmt breytingum í upphaflegum kostnaði þessara vara. Ef gildið í reitnum er núll merkir það að engar færslur eru til staðar til að reikna, mögulega vegna gagnaþjöppunar eða vegna þess að leiðréttingarkeyrslan hefur ekki verið keyrð.

Upphæð kostnaðarleiðr. (SGM)

Þessi reitur birtir mismuninn á milli upphaflega kostnaðarins og leiðréttan heildarkostnað vara í sölupöntuninni. Núllgildi í reitnum merkir annað hvort að upphaflegur kostnaður og leiðréttur heildarkostnaður er jafn eða engar færslur eru til staðar til útreiknings, hugsanlega vegna dagsetningarþjöppunar.

Flýtiflipinn Fyrirframgreiðsla

Reitirnir á flýtiflipanum Fyrirframgreiðsla sýna eftirfarandi upplýsingar:

Reikn. fyrirfr.gr.upp., m/án VSK

Þessi reitur sýnir upphæð heildarfyrirframgreiðslunnar fyrir pöntunina, fyrir allar línur og alla fyrirframgreiðslureikninga. (Ef svæðið Verð með VSK í söluhausnum er með gátmerki er þessi reitur með VSK. Ef Verð með VSK í söluhausnum er ekki með gátmerki er þessi reitur án VSK.)

VSK% eða VSK-upphæð

Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK í fyrirframgreiðslum fyrir allar línur í pöntuninni. (VSK-prósentan er eingöngu tilgreind í reitsheitinu ef allar línur í pöntuninni eru með sömu VSK-prósentu.)

Reikn. fyrirfr.gr.upp., m/án VSK

Þessi reitur sýnir upphæð heildarfyrirframgreiðslunnar fyrir pöntunina, fyrir allar línur og alla fyrirframgreiðslureikninga. (Ef svæðið Verð með VSK í söluhausnum er með gátmerki er þessi reitur án VSK. Ef Verð með VSK í söluhausnum er ekki með gátmerki er þessi reitur með VSK. )

Reikn.færð upphæð fyrirframgr.

Þessi reitur sýnir heildarupphæð fyrirframgreiðslunnar sem hefur verið reikningsfærð fyrir pöntunina.

Frádregin upphæð fyrirframgr.

Þessi reitur sýnir upphæð fyrirframgreiðslunnar sem hefur verið dregin frá venjulegum reikningum sem gefnir hafa verið út fyrir pöntunina.

Upphæð fyrirframgr. til frádr.

Þessi reitur sýnir upphæð fyrirframgreiðslunnar sem er dregin frá ef venjulegur reikningur er gefinn út fyrir pöntunina.

Upphæð fyrirframgr. til frádr. fyrir hverja línu = (Reikn.færð upphæð fyrirframgr. - Frádregin upphæð fyrirframgr.) x (Magn til reikningsf. / Magn). Þessi reitur inniheldur summu allra línanna.

Flýtiflipinn Viðskiptam.

Reitirnir á flýtiflipanum Viðskiptam. sýna eftirfarandi upplýsingar:

Staða (SGM)

Þessi reitur sýnir stöðu á reikningi viðskiptamanns.

Hámarksskuld (SGM)

Tveir reitir sýna upplýsingar um hámarksskuld viðskiptamanns. Fyrri reiturinn sýnir hámarksskuld viðskiptamannsins sem sölupöntun var tegund fyrir, sem upphæð. Seinni reiturinn sýnir prósentu hámarksskuldar sem viðskiptamaður hefur notað.

Ábending