Opnið gluggann  Sölukreditreikn.uppl..
Sölukreditreikn.uppl..
Glugginn Sölukreditreikn.uppl. birtist þegar smellt er á Kreditreikning og síðan á Upplýsingar úr glugganum Bókaður sölukreditreikningur. Glugginn sýnir upplýsingar um viðeigandi sölukreditreikningslínur.
Upplýsingaglugginn felur í sér tvo flýtiflipa: Almennt og Viðskiptam. Þessir flýtiflipar sýna upplýsingar eins og magn, upphæð og VSK fyrir bókaðan sölukreditreikning og hámarksskuld viðskiptamanns.
Í flýtiflipanum Almennt er upphæðin í reitnum Brúttóupphæð er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Sléttunarnákvæmni reikninga í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil. Síðan sléttar kerfið upphæðirnar í reitunum Upphæð, Afsláttarupphæð birgða, samtals og VSK, sem Heildarupphæð með VSK samanstendur af, eins og með þarf. Upphæðir í reitunum Upphæð, Kostnaður (SGM) og Framlegð (SGM) er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Upph. sléttunarnákvæmni í töflunni Gjaldmiðill fyrir viðeigandi gjaldmiðil.
Upphæðirnar í reitunum á flýtiflipanum Almennt eru í sama gjaldmiðli og söluskjalið nema annað sé tekið fram. Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:
| Upphæð | Þessi reitur sýnir nettóupphæð allra línanna á bókaða sölukreditreikningnum. Þessi upphæð er ekki með VSK eða afslætti en felur í sér línuafslátt. | 
| Reikningsafsl.upphæð | Þessi reitur sýnir upphæð reikningsafsláttar alls sölukreditreikningsins. Ef gátmerki er í reitnum Reikna reikn.afsl. í glugganum Sölugrunnur hefur afslátturinn verið reiknaður sjálfkrafa. Að öðrum kosti er hann reiknaður þegar smellt var á Aðgerðir, bent á Aðgerðir og síðan smellt á Reikna reikn.afsl. | 
| Samtals | Þessi reitur sýnir heildarupphæð sölureikningsskjals, að frátalinni afsláttarupphæð og án VSK. | 
| VSK% eða VSK-upphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK af sölukreditreikningnum. | 
| Brúttóupphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð, með VSK, á þeim sölukreditreikningi sem hefur verið bókaður á reikning viðskiptamanns. | 
| Sala (SGM) | Þessi reitur sýnir töluna í reitnum Samtals eins og hún er yfirfærð í SGM. | 
| Upphaflegur kostnaður (SGM) | Þessi reitur sýnir heildarkostnað, í SGM, fjárhagsreikninga, vara og/eða forða á bókaða sölukreditreikningnum. Kostnaðurinn var reiknaður sem (kostnaðarverð * magn). | 
| Leiðréttur kostnaður (SGM) | Þessi reitur birtir heildarkostnað vara í bókaða sölukreditreikningnum, í SGM, sem leiðréttur hefur verið samkvæmt breytingum í upphaflegum kostnaði þessara vara. Ef gildið í reitnum er núll merkir það að engar færslur eru til staðar til að reikna, mögulega vegna gagnaþjöppunar eða vegna þess að leiðréttingarkeyrslan hefur ekki verið keyrð. | 
| Upphæð kostnaðarleiðr. (SGM) | Þessi reitur birtir mismuninn á milli upphaflega kostnaðarins og leiðrétts heildarkostnaðar vara í bókaða sölukreditreikningnum. Núllgildi í reitnum merkir annað hvort að upphaflegur kostnaður og leiðréttur heildarkostnaður er jafn eða engar færslur eru til staðar til útreiknings, hugsanlega vegna dagsetningarþjöppunar. | 
| Upphafleg framlegð (SGM) | Þessi reitur sýnir mismuninn, í SGM, milli upphæða í reitunum Upphæð og Upphaflegur kostnaður (SGM) fyrir bókaðan sölukreditreikning. | 
| Leiðrétt framlegð (SGM) | Þessi reitur sýnir mismuninn, í SGM, milli upphæða í reitunum Upphæð og Leiðréttur kostnaður (SGM) fyrir bókaða sölukreditreikninginn. Núll í þessum reitum merkir að engar færslur eru til staðar í útreikning, hugsanlega vegna dagsetningarþjöppunar. | 
| Upphafleg framlegðar% | Þessi reitur sýnir framlegð sem prósentu af upphæðinni í reitnum Upphæð. | 
| Leiðrétt framlegðar% | Þessi reitur sýnir framlegð, leiðrétta samkvæmt breytingum á upphaflegum kostnaði vara, sem prósentur af upphæðinni í reitnum Upphæð. | 
| Magn | Þessi reitur sýnir heildarmagn fjárhagsreikningsfærslan, vara og/eða forða á bókaða sölukreditreikningnum. Ef sléttuð upphæð stafar af því að gátmerki er við eiginleikann Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur er magn varanna á sölukreditreikningnum plús einn í reitnum Magn. | 
| Pakkningar | Þessi reitur sýnir heildarfjölda pakkninga á bókaða sölukreditreikningnum. | 
| Nettóþyngd | Þessi reitur sýnir heildarnettóþyngd varanna á bókaða sölukreditreikningnum. | 
| Brúttóþyngd | Þessi reitur sýnir heildarbrúttóþyngd varanna á bókaða sölukreditreikningnum. | 
| Rúmmál | Þessi reitur sýnir heildarrúmmál varanna á sölukreditreikningnum. | 
Reitirnir á flýtiflipanum Viðskiptam. sýna eftirfarandi upplýsingar:
| Staða (SGM) | Þessi reitur sýnir stöðu í SGM á reikningi viðskiptamanns. | 
| Hámarksskuld (SGM) | Tveir reitir sýna upplýsingar um hámarksskuld viðskiptamanns. Fyrsti reiturinn sýnir hámarksskuld viðskiptamannsins sem þessi sölukreditreikningur var gerður og bókaður fyrir, í SGM. Seinni reiturinn sýnir prósentu hámarksskuldar sem viðskiptamaður hefur notað. | 
|  Ábending | 
|---|
| Frekari upplýsingar um notkun notandaviðmótsins eru í Vinna með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. | 





