Opnið gluggann Sölureikn.uppl..
Glugginn Sölureikn.uppl. birtist þegar smellt er á Reikning og síðan á Upplýsingar úr glugganum Bókaður sölureikningur. Glugginn sýnir upplýsingar um viðeigandi reikningslínur.
Þessi gluggi felur í sér tvo flýtiflipa: Almennt og Viðskiptam. Þessir flýtiflipar sýna upplýsingar eins og magn, upphæð, VSK og hámarksskuld viðskiptamanns fyrir bókaða sölureikninga.
Í flýtiflipanum Almennt er upphæðin í reitnum Brúttóupphæð er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Sléttunarnákvæmni reikninga í gjaldmiðilstöflunni fyrir viðeigandi gjaldmiðil. Síðan mun kerfið slétta upphæðirnar í reitunum Upphæð, Afsláttarupphæð birgða, samtals og VSK sem Heildarupphæð með VSK samanstendur af. Upphæðir í reitunum Upphæð, Kostnaður (SGM) og Framlegð (SGM) er sléttuð samkvæmt innihaldi reitsins Upph. sléttunarnákvæmni í töflunni Gjaldmiðill fyrir viðeigandi gjaldmiðil.
Upphæðirnar í reitunum á flýtiflipanum Almennt eru í sama gjaldmiðli og söluskjalið nema annað sé tekið fram. Reitirnir á flýtiflipanum Almennt sýna eftirfarandi upplýsingar:
Upphæð | Þessi reitur sýnir nettóupphæð allra lína á bókaða sölureikningnum. Þessi upphæð er ekki með VSK eða afslætti en felur í sér línuafslátt. |
Reikningsafsl.upphæð | Þessi reitur sýnir upphæð reikningsafsláttar alls sölureikningsins. Ef gátmerki er í reitnum Reikna reikn.afsl. í glugganum Sölugrunnur hefur afslátturinn verið reiknaður sjálfkrafa. Að öðrum kosti er hann reiknaður þegar smellt var á Aðgerðir, bent á Aðgerðir og síðan smellt á Reikna reikn.afsl. |
Samtals | Þessi reitur sýnir heildarupphæð bókaðs söluskjals, að frátalinni afsláttarupphæð og án VSK. |
VSK% eða VSK-upphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð VSK á bókaða sölureikningnum. |
Brúttóupphæð | Þessi reitur sýnir heildarupphæð með VSK sem hefur verið bókuð sem reikningsfærð á reikning viðskiptamanns. |
Sala (SGM) | Þessi reitur sýnir töluna í reitnum Samtals eins og hún er yfirfærð í SGM. |
Upphaflegur kostnaður (SGM) | Þessi reitur sýnir heildarkostnað, í SGM, fjárhagsreikningsfærslna, vara og/eða forða á bókuðum sölureikningi. Kostnaður er reiknaður sem (kostnaðarverð * magn á reikning). |
Leiðréttur kostnaður (SGM) | Þessi reitur birtir heildarkostnað vara í bókaða sölureikningnum, í SGM, sem leiðréttur hefur verið samkvæmt breytingum í upphaflegum kostnaði þessara vara. Ef gildið í reitnum er núll merkir það að engar færslur eru til staðar til að reikna, mögulega vegna gagnaþjöppunar eða vegna þess að leiðréttingarkeyrslan hefur ekki verið keyrð. |
Upphæð kostnaðarleiðr. (SGM) | Þessi reitur birtir mismuninn á milli upphaflega kostnaðarins og leiðrétts heildarkostnaðar vara í bókaða sölureikningnum. Núllgildi í reitnum merkir annað hvort að upphaflegur kostnaður og leiðréttur heildarkostnaður er jafn eða engar færslur eru til staðar til útreiknings, hugsanlega vegna dagsetningarþjöppunar. |
Upphafleg framlegð (SGM) | Þessi reitur sýnir mismuninn, í SGM, milli upphæða í reitunum Upphæð og Upphaflegur kostnaður (SGM) fyrir reikningsfært magn í þessu fylgiskjali. |
Leiðrétt framlegð (SGM) | Þessi reitur sýnir mismuninn, í SGM, milli upphæða í reitunum Upphæð og Leiðréttur kostnaður (SGM) fyrir reikningsfært magn í þessu fylgiskjali. Núll í þessum reitum merkir að engar færslur eru til staðar í útreikning, hugsanlega vegna dagsetningarþjöppunar. |
Upphafleg framlegðar% | Þessi reitur sýnir framlegð sem prósentu af upphæðinni í reitnum Upphæð. |
Leiðrétt framlegðar% | Þessi reitur sýnir framlegð, leiðrétta samkvæmt breytingum á upphaflegum kostnaði vara, sem prósentur af upphæðinni í reitnum Upphæð. |
Magn | Þessi reitur sýnir heildarmagn fjárhagsreikningsfærslna, vara og/eða forða á bókuðum sölureikningi. Ef sléttuð upphæð stafar af því að gátmerki er í reitnum Sléttun reiknings í töflunni Sölugrunnur er magn varanna á söluskjalinu plús einn í reitnum Magn. |
Pakkningar | Þessi reitur sýnir heildarmagn reikningsfærðra pakkninga. |
Nettóþyngd | Þessi reitur sýnir heildarnettóþyngd reikningsfærðra vara. |
Brúttóþyngd | Þessi reitur sýnir heildarbrúttóþyngd reikningsfærðra vara. |
Rúmmál | Þessi reitur sýnir heildarrúmmál reikningsfærðra vara. |
Reitirnir á flýtiflipanum Viðskiptam. sýna eftirfarandi upplýsingar:
Staða (SGM) | Þessi reitur sýnir stöðu í SGM á reikningi viðskiptamanns. |
Hámarksskuld (SGM) | Tveir reitir sýna upplýsingar um hámarksskuld viðskiptamanns. Fyrsti reiturinn sýnir hámarksskuld viðskiptamanns sem þessi sölureikningur var gerður og bókaður fyrir, í SGM. Seinni reiturinn sýnir prósentu hámarksskuldar sem viðskiptamaður hefur notað. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um notkun notandaviðmótsins eru í Vinna með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |