Opnið gluggann Lengdur texti.
Tilgreinir viðbótartexta fyrir lýsingar á reikningum, vörum, forða og staðaltexta.
Í glugganum eru flýtiflipar þar sem hægt er að tilgreina skilyrði fyrir notkun lengda textans, eins og dagsetningartakmarkanir og hvaða tegundir fylgiskjala nota má textann í, og línur, þar sem lengdi textinn er færður inn. Þessi aðgerð gerir notanda kleift að bæta við upplýsingum um vöru eða fjárhagsreikning (og auka þannig við reitinn Lýsing).
Lengdur texti er ávallt tengdur við staðaltexta og glugginn er opnaður í glugganum Staðaltexti. Staðaltextinn birtist sem fyrsta línan í texta prentaðs fylgiskjals (hún má vera auð ef þess er óskað) og lengdi textinn birtist þar fyrir neðan.
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um notkun notandaviðmótsins eru í Vinna með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |