Opnið gluggann Afrita verkhluta verks.

Afritar verklínur og verkáætlunarlínur eins verkhluta yfir á annan. Hægt er að afrita úr verkhluta innan þess verks sem unnið er með hverju sinni, eða úr verkhluta annars verks.

Til athugunar
Áætlunardagsetningar í áætlunarlínum í afritinu verða þær sömu og áætlunardagsetningarnar í áætlunarlínunum sem afritað var úr. Að afritun lokinni má breyta dagsetningunum með keyrslunni Breyta verkdagsetningum.

Afrita úr Flýtiflipa

Á flýtiflipanum Afrita úr er tilgreint úr hvaða verki og verkhluta skuli afrita áætlunarlínur:

Flýtiflipinn hefur eftirfarandi lykilreiti.

Valkostur Lýsing

Verk nr.

Fært skal inn verknúmer verksins sem afrita á úr. Til að sjá lista yfir tiltæk verk skal velja reitinn

Verkhluta nr. frá

Til að afrita áætlunarlínur fyrir verkhluta á ákveðnu bili er fært inn í þennan reit fyrsta verkhlutanúmerið sem afrita á úr. Einungis verða teknar með áætlunarlínur með verkhlutanúmer jafnt þessu númeri eða hærra.

Verkhlutanr. til

Til að afrita áætlunarlínur fyrir verkhluta á ákveðnu bili er fært inn í þennan reit síðasta verkhlutanúmerið sem afrita á úr. Einungis verða teknar með áætlunarlínur með verkhlutanúmer jafnt þessu númeri eða lægra.

Gögn

Í þessum reit er valið á hvaða grundvelli á að afrita áætlunarlínurnar. Ef, til dæmis, áætlunarlínurnar eiga að endurspegla raunverulega notkun og reikningsfærslu vöru, forða og fjárhagsútgjalda verksins sem afritað er úr, verður að velja Verkfærslur í þessum reit. Ef ekki á að afrita allar verkáætlunarlínur skal velja Ekkert.

Áætlunarlínutegund tekin með

Tilgreina skal tegund áætlunarlína sem afrita skal úr. Valkostirnir eru eftirfarandi:

  • Áætlun+Samningur: Allar áætlunarlínur eru afritaðar.
  • Áætlun: Einungis eru afritaðar línur af gerðinni Áætlun eða af gerðinni Bæði áætlun og samningur.
  • Samningur: Einungis eru afritaðar línur af gerðinni Samningur eða af gerðinni Bæði áætlun og Samningur.
Til athugunar
Aðeins þarf að útfylla þennan reit ef valið var Verkáætlunarlínur í reitnum Uppruni.

Verkfærslulínutegund tekin með

Þessi reitur er notaður til að tilgreina þá verkfærslutegund sem taka skal með. Valkostirnir eru eftirfarandi:

  • Notkun+Sala: Kerfið afritar allar verkfærslur, óháð tegund. Færslur af tegundinni Notkun eru afritaðar yfir í nýjar áætlunarlínur af tegundinni Áætlun. Færslur af tegundinni Sala eru afritaðar yfir í nýjar áætlunarlínur af tegundinni Samningur.
  • Notkun: Kerfið afritar allar verkfærslur af tegundinni Notkun yfir í nýjar áætlunarlínur af tegundinni Áætlun.
  • Sala: Kerfið afritar allar verkfærslur af tegundinni Sala yfir í nýjar áætlunarlínur af tegundinni Samningur.
Til athugunar
Aðeins þarf að útfylla þennan reit ef valið var Fjárhagsfærslur í reitnum Uppruni.

Upphafsdagsetning

Til að afrita áætlunarlínur eða verkfærslur fyrir tiltekið tímabil er upphafsdagsetning tímabilsins færð inn í þennan reit. Aðeins verða teknar með áætlunarlínur með áætlunardagsetningar frá og með upphafsdagsetningunni.

Lokadagsetning

Til að afrita áætlunarlínur eða verkfærslur fyrir tiltekið tímabil er lokadagsetning tímabilsins færð inn í þennan reit. Aðeins verða teknar með áætlunarlínur með áætlunardagsetningar fyrir lokadagsetninguna eða á þeim degi.

Afrita í Flýtiflipa

Á flýtiflipanum Afrita í er tilgreint í hvaða verki og verkhluta skuli afrita áætlunarlínur:

Flýtiflipinn hefur eftirfarandi lykilreiti.

Valkostur Lýsing

Verk nr.

Færa skal inn númer þess verks sem afrita á áætlunarlínur yfir í. Til að sjá lista yfir tiltæk verk skal velja reitinn

Nota flýtiflipa

Á flýtiflipanum Nota er tilgreint hvernig verkið skuli afritað:

Flýtiflipinn hefur eftirfarandi lykilreiti.

Valkostur Lýsing

Afrita magn

Valið til að afrita magn yfir í nýja verkið.

Afrita víddir

Valið til að afrita víddir í nýja verkið og verkhluta.

Ábending

Sjá einnig