Opnið gluggann Dags.þj. fjárhagshöfuðbók.

Þjappar fjárhagsáætlunarfærslum svo að þær taki minna pláss í gagnagrunninum. Aðeins er hægt að þjappa færslum sem tilheyra lokuðum reikningsárum.

Þjöppunin sameinar margar gamlar færslur í eina nýja. Þannig má til að mynda þjappa fjárhagsfærslum umliðinna reikningsára þannig að á hverjum reikningi sé einungis um að ræða eina kreditfærslu og eina debetfærslu fyrir hvern mánuð. Upphæðin í nýju færslunni er samtala allra þjöppuðu færslnanna. Dagsetningin sem færslan hlýtur er upphafsdagsetning tímabilsins sem er þjappað, til dæmis fyrsti dagur mánaðarins (ef færslunum er þjappað eftir mánuðum). Eftir þjöppunina er enn hægt að sjá hreyfingar fyrir hvern reikning reikningsársins á undan.

Eftir þjöppunina er efni eftirfarandi reita alltaf varðveitt: Bókunardags., Fjárhagsreikn.nr., Alm. viðsk.bókunarflokkur, Alm. vörubókunarflokkur, Alm. bókunartegund, Upphæð, og VSK-upphæð. Það er líka hægt að varðveita efni þessara viðbótarreita: Tegund fylgiskjals, Númer fylgiskjals, Verk nr. og Kóti fyrirtækiseiningar.

Fjöldi færslna sem verða til í keyrslunni Dags.þj. fjárh.áætl.færslna ræðst af fjölda afmarkana sem settar eru, reitum sem eru sameinaðir og lengd tímabilsins sem er valið. Það er alltaf minnst ein færsla. Þegar keyrslu er lokið má sjá útkomuna í glugganum Shortcut iconDags.þjöppun dagbóka.

Viðvörun
Dagsetningaþjöppun eyðir færslum svo að tryggara er að taka alltaf afrit af gagnasafni áður en keyrslan er sett í gang.

Til athugunar
Valið ef varðveita á innihald tiltekinna reita jafnvel þótt færslum sé þjappað. Því fleiri reitir sem eru valdir, þeim mun ítarlegri verða þjöppuðu færslurnar. Ef ekki er valinn neinn þessara reita, stofnar keyrslan eina færslu á dag, viku eða öðru tímabili eftir þeirri tímalengd sem var valin í reitnum Lengd tímabils.

Valkostir

Reitur Lýsing

Upphafsdagsetning

Hér er færð inn upphafsdagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar fjárhagsfærslur frá þessari dagsetningu til Lokadagsetning.

Lokadagsetning

Hér er skráð lokadagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar fjárhagsfærslur frá Upphafsdagsetning til þessarar dagsetningar.

Lengd tímabils

Lengd þess tímabils sem sameina á færslur í er valið. Til að sjá valkostina skal velja reitinn. Ef valin var tímabilið Fjórðungur, Mánuður eða Vika eru eingöngu færslur með sameiginlegu reikningstímabili þjappaðar.

Færslutexti

Færið inn texta sem fylgir færslunum sem verða til í keyrslunni. Sjálfgefni textinn er Dagsetningarþjöppun.

Tegund fylgiskjals

Valið ef varðveita á innihald fylgiskjalstegundar jafnvel þótt færslum sé þjappað.

Númer fylgiskjals

Valið ef varðveita á innihald fylgiskjalsnúmers jafnvel þótt færslum sé þjappað.

Verk nr.

Valið ef varðveita á innihald verknúmers jafnvel þótt færslum sé þjappað.

Kóti fyrirtækiseiningar

Valið ef varðveita á innihald fyrirtækiseiningarkóta jafnvel þótt færslum sé þjappað.

Varðveita víddir

Smellt er á reitinn til að velja víddarupplýsingar sem á að varðveita þegar færslum er þjappað. Þjappaðar færslur verða ítarlegri eftir því sem kosið er að varðveita meiri víddarupplýsingar.

Til athugunar
Ef ekki eru valdar víddir til að varðveita þá verður ekki möguleiki á skýrslu eftir víddum eftir að keyrslan hefur farið fram.

Magn

Valið til að geyma samtölu magnsreitsins.

Ábending