Opnið gluggann Dags.þj. fjárh.áætl.færslna.
Þjappar fjárhagsáætlunarfærslur svo að þær taki minna pláss í gagnagrunninum. Aðeins er hægt að þjappa færslum sem tilheyra lokuðum reikningsárum.
Þjöppunin sameinar margar gamlar færslur í eina nýja. Þannig má til að mynda þjappa fjárhagsáætlunarfærslum umliðinna reikningsára þannig að á hverjum reikningi sé einungis um að ræða eina kreditfærslu og eina debetfærslu fyrir hvern mánuð. Upphæðin í nýju færslunni er samtala allra þjöppuðu færslnanna. Dagsetningin sem færslan hlýtur er upphafsdagsetning tímabilsins sem er þjappað, til dæmis fyrsti dagur mánaðarins (ef færslunum er þjappað eftir mánuðum). Eftir þjöppunina er enn hægt að sjá hreyfingar fyrir hvern reikning reikningsársins á undan.
Eftir þjöppunina er efni eftirfarandi reita alltaf varðveitt: Dagsetning, Heiti áætlunar, Fjárhagsreikn.nr., og Upphæð. Með aðgerðinni Varðveita innihald reita er líka hægt að varðveita efni þessara viðbótarreita: Altæk vídd 1 - Kóti, Altæk vídd 2 - Kóti og Kóti fyrirtækiseiningar.
Fjöldi færslna sem verða til í keyrslunni Dags.þj. fjárh.áætl.færslna ræðst af fjölda afmarkana sem settar eru, reitum sem eru sameinaðir og lengd tímabilsins sem er valið. Það er alltaf minnst ein færsla. Þegar keyrslu er lokið má sjá útkomuna í glugganum Dags.þjöppun dagbóka.
![]() |
---|
Dagsetningaþjöppun eyðir færslum svo að tryggara er að taka alltaf afrit af gagnasafni áður en keyrslan er sett í gang. |
![]() |
---|
Valið ef varðveita á innihald tiltekinna reita jafnvel þótt færslum sé þjappað. Því fleiri reitir sem eru valdir, þeim mun ítarlegri verða þjöppuðu færslurnar. Ef ekki er valinn neinn þessara reita, stofnar keyrslan eina færslu á dag, viku eða öðru tímabili eftir þeirri tímalengd sem var valin í reitnum Lengd tímabils. |
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphafsdagsetning | Hér er færð inn upphafsdagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar fjárhagsáætlunarfærslur frá þessari dagsetningu til Lokadagsetning. |
Lokadagsetning | Hér er skráð lokadagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar fjárhagsáætlunarfærslur úr Upphafsdagsetning fram að þessari dagsetningu. |
Lengd tímabils | Lengd þess tímabils sem sameina á færslur í er valið. Til að sjá valkostina skal velja reitinn. |
Færslutexti | Færið inn texta sem fylgir færslunum sem verða til í keyrslunni. Sjálfgefni textinn er Dagsetningarþjöppun. |
Kóti fyrirtækiseiningar | Valið ef varðveita á innihald fyrirtækiseiningarinnar. |
Varðveita víddir | Veljið víddir ef varðveita á innihald víddareita. |
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |