Opnið gluggann Flytja neikvæðar sölulínur.
Eyðir neikvæðri sölulínu úr skjalinu sem unnið er í og færir hana í aðra tegund söluskjals þegar færð eru inn söluskil. Niðurstaðan er sú sama hvað varðar vöru til ráðstöfunar og birgðavirði en færslan er tjáð sem jákvæð lína þess í stað.
Þessa keyrslu er að finna í gluggunum Sölupöntun, Sölureikningur, Söluskilapöntun og Sölukreditreikningur.
Valkostir
Til tegundar fylgiskjals: Í þessum reit má velja þá tegund skjals sem færa á neikvæðu sölulínurnar til. Hér á eftir sjást mismunandi valkostir og afleiðingar:
-
Úr gluggunum Sölupöntun og Sölureikningur er hægt að velja annaðhvort skilapöntun eða kreditreikning. Ef valin er skilapöntun má aðgreina magn og virði hreyfingarinnar þegar bókað er. Ef valinn er kreditreikningur uppfærist bæði magn og virði við bókun.
-
Úr gluggunum Vöruskilapöntun sölu og Sölukreditreikningur er hægt að velja annaðhvort pöntun eða reikning. Ef valin er pöntun má aðgreina magn og virði hreyfingarinnar þegar bókað er. Ef valinn er reikningur uppfærist bæði magn og virði við bókun.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |