Opnið gluggann Fjöldabóka innkaupavöruskilapantanir.
Bókar margar vöruskilapantanir innkaupa í einu. Þetta getur verið gagnlegt ef um er að ræða margar vöruskilapantanir innkaupa sem þarf að bóka. Hægt er að velja pantanir til bókunar og tilgreina forgang þeirra áður en keyrslan er sett af stað.
Mikilvægt |
---|
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á vöruskilapantanir innkaupa áður en þær eru fjöldabókaðar. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margar innkaupapantanir voru bókaðar. |
Keyrslan er keyrð með því að opna gluggann Vöruskilapantanir innkaupa, velja pantanirnar sem á að bóka og velja svo hnappinn Fjöldabóka.
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Afhenda | Valið ef pantanir eru afhentar við bókun. Þegar þessi gátreitur er valinn gildir það fyrir allar bókaðar pantanir. |
Reikningur | Valið ef pantanir eru reikningsfærðar við bókun. Þegar þessi gátreitur er valinn gildir það fyrir allar bókaðar pantanir. |
Bókunardags. | Færa skal inn þá dagsetningu sem á að nota sem dagsetningu skjals eða bókunar þegar bókað er ef gátreiturinn Endursetja dags. skjals eða gátreiturinn Endursetja bókunardags. er valinn. Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt viðeigandi gátreitur sé ekki valinn. |
Endursetja bókunardags. | Velja ef óskað er eftir að skipta út bókunardagsetningu skjals í pöntunum með dagsetningunni sem færð er inn í reitnum Bókunardags.. |
Endursetja dags. skjals | Velja ef óskað er eftir að skipta út dagsetningu skjals í pöntunum með dagsetningunni í reitnum Bókunardags.. |
Reikna reikn.afsl. | Valið ef reikna á upphæð reikningsafsláttar í pöntunum fyrir bókun. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |