Opnið gluggann Fjöldabóka innk.kreditreikning.
Bókar marga innkaupakreditreikninga í einu. Hún getur verið gagnleg ef þarf að bóka marga kreditreikninga. Áður en keyrslan er sett í gang þarf að velja þá kreditreikninga sem eiga að bókast.
![]() |
---|
Brýnt er að færa inn allar nauðsynlegar upplýsingar á innkaupakreditreikningana áður en þeir eru fjöldabókaðir. Annars er ekki víst að þær bókist. Þegar fjöldabókun er lokið birtast skilaboð um hve margir innkaupakreditreikninganna voru bókaðir (til dæmis 9 af 10). |
Valkostir
Bókunardags.: Hér er skráð dagsetningin sem kerfið notar sem dagsetningu fylgiskjals og/eða bókunar þegar bókað er ef annar hvor eða báðir eftirfarandi reitir eru merktir með gátmerki.
Ef engin bókunardagsetning eða fylgiskjalsdagsetning er á fylgiskjali er dagsetningin í þessum reit notuð jafnvel þótt ekkert gátmerki sé í viðeigandi reit.
Endursetja bókunardags.: Í þennan reit má setja gátmerki ef hann á að koma í stað bókunardagsetningar kreditreikningsins sem dagsetning var færð inn í reitnum Bókun/Dags. skjals.
Endursetja dagsetningu fylgiskjals: Í þennan reit má setja gátmerki ef hann á að koma í stað skjalsdagsetningar kreditreikningsins sem dagsetning var færð inn í reitnum Bókun/Dags. skjals.
Reikna reikn.afsl.: Gátmerki er sett í þennan reit ef reikningsafsláttur á að reiknast sjálfkrafa á innkaupakreditreikningi áður en bókað er.
![]() |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |