Opnið gluggann Dags.þj. bankareikn.höfuðbók.
Þjappar eða sameinar fjárhagsfærslur bankareikninga svo að þær taki minna pláss í gagnagrunninum. Aðeins er hægt að þjappa færslum sem tilheyra lokuðum reikningsárum.
Þjöppunin sameinar margar gamlar færslur í eina nýja. Þannig má til að mynda þjappa bankareikningsfærslum umliðinna reikningsára þannig að á hverjum reikningi sé einungis um að ræða eina kreditfærslu og eina debetfærslu fyrir hvern mánuð. Upphæðin í nýju færslunni er samtala allra þjöppuðu færslnanna. Sú dagsetning sem færslan hlýtur er fyrsta dagsetning þess tímabils sem þjöppun tekur til, svo sem fyrsti dagur mánaðarins (ef um mánaðarþjöppun færslna er að ræða). Að þjöppun lokinni er eftir sem áður hægt að skoða hreyfingar á einstökum reikningum frá fyrra reikningsári.
Eftir þjöppunina, með aðgerðinni Varðveita reitaefni má varðveita efni reitanna Númer fylgiskjalsTengiliður okkar, Deildarkóti og Verkefniskóti.
Fjöldi færslna sem keyrslan Dags.þj. bankareikn.höfuðbók skilar veltur á fjölda afmarkana, reitum sem eru sameinaðir og þeirri lengd tímabils sem valin er. Það er alltaf minnst ein færsla. Þegar keyrslu er lokið má sjá útkomuna í glugganum Dags.þjöppun dagbóka. Tilgreina verður skilyrði í öðrum reitum á flýtiflipanum Valkostir áður en keyrslan er notuð.
Viðvörun |
---|
Dagsetningaþjöppun eyðir færslum svo að tryggara er að taka alltaf afrit af gagnasafni áður en keyrslan er sett í gang. |
Valkostir
Reitur | Lýsing |
---|---|
Upphafsdagsetning | Hér er færð inn upphafsdagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar bankareikningsfærslur frá þessari dagsetningu til Lokadagsetning. |
Lokadagsetning | Hér er skráð lokadagsetning þjöppunarinnar. Þjöppunin hefur áhrif á allar bankareikninfærslur frá Upphafsdagsetning til þessarar dagasetningar. |
Lengd tímabils | Lengd þess tímabils sem sameina á færslur í er valið. Til að sjá valkostina skal velja reitinn. Ef valin var tímabilið Fjórðungur, Mánuður eða Vika eru eingöngu færslur með sameiginlegu reikningstímabili þjappaðar. |
Færslutexti | Færa inn texta sem á að fylgja færslum sem verða til í keyrslunni. Sjálfgefni textinn er Dagsetningarþjöppun. |
Varðveita reitainnihald | Valið ef varðveita á innihald tiltekinna reita jafnvel þótt færslum sé þjappað. Því fleiri reitir sem eru valdir, þeim mun ítarlegri verða þjöppuðu færslurnar. Ef ekki er valinn neinn þessara reita, stofnar keyrslan eina færslu á dag, viku eða öðru tímabili eftir þeirri tímalengd sem var valin í reitnum Lengd tímabils. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með keyrslur eru í Hvernig á að keyra runuvinnslur og Hvernig á að stilla afmarkanir. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |