Þegar allar vörur hafa verið færðar í sölupöntunarlínurnar er hægt að reikna reikningsafslátt af öllu söluskjalinu með því að smella á Aðgerðir, vísa á Aðgerðir og smella svo á Reikna reikningsafsl.

Ef reiturinn Reikna reikn.afsl. er valinn í glugganum Sölugrunnur þá hefur reikningsafslátturinn verið reiknaður sjálfvirkt. Nánari upplýsingar um hvenær sjálfvirki útreikningurinn á sér stað eru í Reikna reikn.afsl.

Afslættinum er jafnað niður á allar línur í söluskjalinu fyrir vörur þar sem er í reitnum Reikna reikningsafsl. Þetta er sjálfgefin stilling fyrir vörur.

Reikningsafsláttarskilmálar eru skilgreindir í töflunni Reikningsafsl. viðskm. til að reikna út reikningsafsláttinn. Kerfið notar gjaldmiðilskótann í sölureikningnum til að finna skilmála reikningsafsláttar í samsvarandi gjaldmiðli.

Ef reikningsafsláttur hefur ekki verið skilgreindur í erlendum gjaldeyri þá eru notaðir skilmálar reikningsafsláttar í SGM, sem skilgreindir eru í töflunni Reikningsafsl. viðskm. og gengið á bókunardegi söluskjalsins er notað til að reikna reikningsafsláttinn í erlendum gjaldeyri.

Til að skoða núverandi viðskm. reikningsafsl. á viðskiptamannaspjaldi skal velja Færsluleit og síðan Reikningsafsl.

Sjá einnig