Tilgreinir númer vélastöðvarinnar.
Mest má rita 20 stafi, bæði tölustafi og bókstafi. Til dæmis er hægt að sameina tölur og skammstöfun á tegund eða stöðu vélastöðvarinnar.
Númerið verður að vera einstakt - ekki er hægt að nota sama númer tvisvar í sömu töflu. Hægt er að setja upp eins mörg númer og þurfa þykir.
Númerið auðkennir vélastöðina. Ef númerið er til dæmis ritað í töfluna Leiðarhaus er viðeigandi gögnum (til dæmis lýsingu) sjálfkrafa skotið inn.
Ekki er hægt að fylla út hina reitina á vélastöðvarspjaldinu fyrr en búið er að rita númer í reitinn Númer.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |