Sýnir birgðageymsluna þar sem vinnustöð starfar sjálfgefið.
Birgðageymslukótinn sem er skilgreindur í þessum reit á einnig við um allar undirliggjandi vélastöðvar.
Viðbótarupplýsingar
Ef vinnustöðin er notuð í framleiðslupöntun í birgðageymslunni sem tilgreind er í þessum reit mun uppsetning vinnustöðvar skilgreina notkun og frálag vöruhúsaaðgerða. Sundurliðað vöruflæði til og frá vinnustöð er skilgreint í hólfakótareitunum í Kóti birgðageymslu svæðinu á vinnustöðvarspjaldinu.
Enn hægt að nota verkstöðina í framleiðslupöntunum á hvaða örðum stað sem er sem ekki er tilgreindur í reitnum. Í því tilviki eru hólfkótarnir sem skilgreindir eru í vinnustöðvarspjaldinu ekki notaðir.
Ef enginn birgðageymslukóti hefur verið skilgreindur í vinnustöðinni en birgðageymslukóti er til staðar í reitnum Íhlutir á staðnum í glugganum Framleiðslugrunnur verður stofnun íhlutalína fyrir þá birgðageymslu altækt sjálfgildi.
Ef sjálfgefið hólfaskipulag hefur verið skilgreint fyrir íhluti gegnir reiturinn Kóti birgðageymslu á vinnustöðvarspjaldinu hlutverki þegar fyllt er út í reitinn Hólfkóti í íhlutalínum framleiðslupöntunar. Frekari upplýsingar eru í Hólfkóti til framleiðslu.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |