Skilgreinir tengingu milli viðskiptamanna og fjárhags við viðskiptamannabókunarflokkar.
Mikilvægt |
---|
Stofna verður nauðsynlega reikninga í glugganum Bókhaldslykill áður en bókunarflokkar eru stofnaðir. |
Í töflunni Bókunarflokkur viðskiptamanna er tilgreint á hvaða reikninga kerfið á að bóka færslur á viðskiptavini í hverjum bókunarflokki. Hægt er að skilgreina eftirfarandi reikninga:
-
Útistandandi
-
Þjónustugjöld
-
Greiðsluafsláttur
-
Sléttun reikninga
-
Viðbótargjald
-
Vextir
Þessa töflu er hægt að nota til að stofna kóta fyrir hvern bókunarflokk viðskiptamanna. Síðan er hægt að færa kótann inn í reitinn Bókunarflokkur viðskiptamanna á hvert viðskiptamannaspjald. Við bókun pantana, reikninga, kreditreikninga, greiðslna, o.s.frv. notar kerfið þær upplýsingar sem kótinn vísar til að bóka þá reikninga sem tilgreindir voru.
Einnig er hægt að úthluta viðskiptamönnum almennum viðskiptabókunarflokkum. Kóti viðskiptaflokks er síðan notaður ásamt kóta almenns vörubókunarflokks í töflunni Alm. bókunargrunnur til að tilgreina þá reikninga sem tiltekin viðskipti eru bókuð á.