Tilgreinir greiningaryfirlitsfærslur sem verða til þegar greiningaryfirlit er uppfært. Greiningaryfirlitsfærsla samanstendur af einni eða fleiri birgðafærslum sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi bókunardagsetningu, reikningsnúmer og víddarupplýsingar sem tilgreindar hafa verið fyrir greiningaryfirlit.

Þegar greiningaryfirlit er skilgreint er hægt að tilgreina hvaða upplýsingar eigi að birtast í því yfirliti. Til dæmis er hægt að tilgreina hvaða víddir og víddargildi birgðafærslur þurfi að hafa til þess að þær séu teknar með í yfirliti. Einnig er hægt að tilgreina hvort aðeins eigi að taka birgðafærslur sem bókaðar eru á ákveðna reikninga með í greiningaryfirliti með reitnum Birgðaafmörkun . Þegar greiningaryfirlit er uppfært þjappar kerfið birgðafærslum sem uppfylla skilyrðin sem sett eru fyrir greiningaryfirlitið og býr til greiningaryfirlitsfærslur. Hver greiningaryfirlitsfærsla stendur fyrir einstaka samsetningu bókunardags, vörunúmers og víddargilda.

Greiningaryfirlitsfærsla getur því falið í sér margar birgðafærslur eftir því hvaða dagsetningarþjöppun hefur verið stillt fyrir greiningaryfirlitið. Ef valið er að þjappa ekki dagsetningum fyrir greiningaryfirlitsfærslur verður hver greiningaryfirlitsfærsla jöfn einni birgðafærslu. Ef hins vegar er valið að dagsetningarþjappa greiningaryfirlitsfærslum teljast allar birgðafærslur innan tímabils sem hafa sömu samsetningu bókunardags, vörunúmers og víddargilda til einnar greiningaryfirlitsfærslu.

Sjá einnig