Tilgreinir dagsetningarbil sem gildi eru afmörkuð eftir.
Innihaldi þessi reitur upphafs- lokadagsetningar fyrir tímabil munu gildi annarra reita aðeins sýna upplýsingar fyrir það tímabil.
Eftirfarandi tafla sýnir reglurnar sem nota skal þegar dagsetningarbil eru færð inn.
Merking | Dæmi | Færslur sem eru teknar með |
---|---|---|
Jafnt og | 12 15 12 | Aðeins færslur sem eru bókaðar 15. desember 2012. |
Millibil | 12 15 12..01 15 13 ..12 15 12 | Færslur sem eru bókaðar á dagsetningum á milli og með 15. desember 2012 og 15. janúar 2013. Færslur sem eru bókaðar 15. janúar 2012 eða fyrr. |
Annaðhvort eða | 12 15 12|12 16 12 | Færslur sem eru bókaðar á annaðhvort 15. desember 2012 eða 16. desember 2012. Ef færslur eru til staðar sem eru bókaðar báða dagana þá eru allar færslur birtar. |
Einnig má tengja grunnformin saman.
Dæmi | Færslur sem eru teknar með |
---|---|
12 15 12|12 01 12..12 10 12 | Færslur sem eru bókaðar annað hvört 15. desember 2012 eða á dagsetningum á milli og með 1. desember 2012 til 10. desember 2012. |
..12 14 12|12 30 12.. | Færslur sem eru bókaðar 14. desember 2012 eða fyrr eða færslur sem eru bókaðar 30. desember 2012 eða síðar, sem felur í sér allar færslur nema þær sem eru bókaðar við dagsetningar milli og með 15. desember 2012 og 29. desember 2012. |
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |