Tilgreinir jöfnunarkenni fyrir bókuðu færslurnar sem tiltekið þjónustuskjal verður jafnað við ef aðgerðin Jafna færslur er notuð.
Mikilvægt |
---|
Ef þjónustuskjalið verður eingöngu nota á eitt bókað fylgiskjal, er hægt að nota reitina Tegund jöfnunar og Jöfnunarnúmer í stað þessa reits. |
Í þjónustuskjalinu er smellt á Aðgerðir, bent á Aðgerðir og valið Jafna færslur. Þá birtist listi yfir allar opnar færslur. Smellt er í línu með færslu sem jafna á þjónustuskjalið við og síðan smellt á Tengdar upplýsingar, bent á Jöfnun og smellt á Setja kenni jöfnunar. Fylgiskjalsnúmerið í þjónustuhausnum fer sjálfkrafa í reitinn Setja kenni jöfnunar í bókuðu færslunni. Þessi tvö þrep eru endurtekin fyrir hverja opna færslu sem jafna á við. Farið er aftur í þjónustuskjalið með því að styðja á Esc. Nú skráist fylgiskjalsnúmerið í reitinn Kenni jöfnunar í þjónustuhausnum.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |