Tilgreinir hvort bóka á viðbótarstofnkostnað og mögulegt hrakvirði eignar sem þegar hefur verið keypt.

Ef valkosturinn Kaup hefur verið valinn í reitnum Eignabókunartegund er hægt að smella hér til að setja inn gátmerki. Þegar línan er bókuð er síðan (nýi) stofnkostnaðurinn mínus hrakvirðið afskrifaður í hlutfalli við upphæðina sem (gamla) eigin hefur þegar verið afskrifuð um.

Dæmi

Stofnkostnaður eignar er 1000 og heildarafskrift er -220. Þá er bókuð lína þar sem stofnkostnaðurinn er 150 og hrakvirðið -25. Ef sett er gátmerki í þennan reit fyrir bókun er eftirfarandi afskrift reiknuð og bókuð: (150 - 25) * -220 / 1000 = -27.50

Ef færður er inn neikvæður stofnkostnaður (þetta á við ef notanda berst kreditreikningur) verður reiknuð afskrift jákvæð upphæð.

Mikilvægt
Aðeins nýr stofnkostnaður er afskrifaður þegar gátmerki er sett í þennan reit. Þetta hefur engin áhrif á fyrirliggjandi (gamlan) stofnkostnað.

Hægt er að afskrifa bæði nýja og gamla stofnkostnaðinn fram að gildandi Eignabókunardags. ef einnig er fært gátmerki í reitinn Afskr. til eignabókunardags..

Ábending

Sjá einnig