Tilgreinir númer framleiðslupöntunarinnar.
Nota má eina af eftirfarandi aðferðum:
-
Ef stofnuð hefur verið sjálfgefin númeraröð fyrir stöðu framleiðslupöntunar er stutt á færslulykilinn til að kerfið færi næsta númer í röðinni inn í reitinn.
-
Ef stofnaðar voru fleiri en ein númeraröð fyrir þessa stöðu framleiðslupantana er smellt á AssistButton í reitnum og valin röðin sem óskað er eftir að nota. Forritið fyllir reitinn út með næsta númeri í þeirri röð sem var valin.
-
Ef ekki hafa verið settar upp númeraraðir fyrir þessa stöðu framleiðsluuppskriftar eða númeraröðin er með gátmerki í reitnum Handfærð nr.röð er hægt að færa inn númer handvirkt. Mest má rita 20 stafi, bæði tölustafi og bókstafi.
Ekki er hægt að breyta númeri framleiðslupöntunar eftir að það hefur verið staðfest með því að styðja á færslulykilinn.
Ábending |
---|
Frekari upplýsingar um hvernig á að vinna með reiti og dálka eru í Unnið með Microsoft Dynamics NAV. Nánari upplýsingar um hvernig finna má tilteknar síður eru í Leit. |