Tilgreinir afmörkun til að tilgreina hvaða fjárhagsreikningar verða teknir með í greiningaryfirlit. Með því að setja afmarkanir er einnig hægt að tilgreina að einungis færslur sem bókaðar eru á afmörkunarreikningana verði teknar með þegar greiningaryfirlit er uppfært. Smellt er á reitinn til að velja úr fjárhagsreikningunum í bókhaldslyklinum.

Mest má rita 250 stafi, bæði tölustafi og bókstafi. Röðun þeirra lýtur ákveðnum reglum:

MerkingDæmiTekið með í uppfærslu

Jafnt og

6210

Færslur úr reikningi 6210

Millibil

5510 .. 5531

Færslur úr reikningi 5510 til reiknings 5531 að báðum meðtöldum.

Annaðhvort eða

1200|1300

Færslur í reikningi 1200 eða 1300.

Annað en

<>1200

Allir reikningar nema 1200

Einnig er hægt að sameina mismunandi framsetningarsnið:

Reitur Lýsing

5999|8100 .. 8490

Allar færslur með reikninginn 5999 eða í reikningum á bilinu frá 8100 til og með 8490 eru teknar með.

..1299|1400..

Telja með færslur í reikning sem er lægri eða jafn 1299 eða reikning sem er jafn 1400 eða hærri (allir reikningar nema 1300 til 1399).

Ábending

Sjá einnig